Sæll
Ég ætla að skrifa smá reynslusögu um þá BMW sem ég hef átt yfir tíðina.
Nú veit ég ekki hvað þú ert gamall og búinn að eiga marga bíla en ætla að fara lauslega yfir mína stöðu
Átti fyrst Huyndai Elantra, 17 ára, fyrsti bíllinn en langaði alltaf í BMW
Keypti minn fyrsta BMW 18 ára gamall og var það E36 318 1993....Mér þótti sá bíll vera algjör draumur at the time og eyddi hátt í 500 þúsund í breytingar og viðhald á honum. Keypti hann fyrir 500 þúsund og seldi aftur fyrir 500 þúsund....
Eftir það ákvað ég að eyða aldrei slíkum pening í bíl, því að það er ekki fræðilegur möguleiki að maður fái hann aftur til baka.
Eftir það keypti ég E39 523.....og aftur fannst mér sá bíll vera geðsjúkur, hann var að mínu mati fyrsti "alvöru" BMWinn minn. Ég get ekki lýst því hversu mikill munur er á E36 og E39 að mínu mati. Mér þykir E36 boddíið ennþá classic en persónulega myndi ég ekki fá mér slíkan bíl aftur, nema þá E36 M3 eða þá einhvern trampdrifter
Seldi hann og flutti inn Z4. Draumabíllinn en seldi hann aftur því að ég persónulega haaaaata lán á bílum. Sé mest eftir þeim bíl.
Keypti svo E39 530d. Var frekar efins með hann í fyrstu vegna þess að hann var Touring en eftir að hafa átt hann í mánuð þá byrjaði ég að elska hann. Þrátt fyrir að Z4 hafi verið draumabíllinn þá vær 530d laaaaaangbesti bíll sem ég hef átt
Nú veit ég ekki hvort að þú hefur prufað aðra bimma, t.d E39, E46, E38 eða eitthvað álíka en að mínu mati er E36 ekki með þetta "solid" feel.
Þannig að lokaorðin mín í þessum málum eru þessi...
Kannaðu E39, að mínu mati þæginlegustu "budget" krúserar sem völ er á í dag og það þarf ekki að vera meira en 523 til að vera ásættanlegur kraftur í þeim.
Ekki eyða pening í 1999 árgerð af E36, hvað þá compact. Þú munt aldrei sjá þann pening aftur plús að hann verður erfiðari í endursölu, aðallega út af því að hann er compact. Þú verður heldur ekki sáttur með peninginn sem þú færð fyrir hann við endursölu, því að þú ert búinn að leggja X mikla upphæð í hann sem þú færð ekki til baka
Trust me on that one, I know
