Ég var aldeilis á réttum stað á réttum tíma í dag þegar ég leit aðeins upp í B&L og sá á planinu hjá þeim nýja X3 3.0i. Þeir voru að fara í smá rúnt og ég fékk að fljóta með.
Við fyrstu sýn lítur bíllinn mjög vel út, hann er mun sportlegri í útliti en t.d. X5 enda slatta minni og rennilegri. Að innan er hann mjög smekklegur og þægilegur. Innanrýmið minnir mikið á nýjum fimmuna, t.d. hurðarnar, og líka fannst mér miðjustokkurinn ekki vera mjög ólíkur E39 og E38 nema aðeins nútímalegra (en reyndar sama og með nýju fimmuna snýr miðjustokkurinn ekki að ökumanni, sem mér finnst reyndar afturför). Semsagt ekkert iDrive!
X3 bíllinn er að mínu mati mun passlegri bíll svona stærðarlega séð en X5. Það verður skemmtilegt að sjá hann meira og í umferð á næstu vikum. Það er ekki spurning að þeir eiga eftir að koma þó nokkrir á götuna hér.
Svo er spurning hvort X3 sé ekki besta vísbendingin hingað til hvernig næsti þristur kemur til með að líta út... lofar góðu ef svo er!

