by Giz » Tue 27. Oct 2009 15:04
Jæja, þar sem menn eru alltaf að tala um viðhaldshýt varðandi e39 M5 osfr, ætlaði ég að telja upp hvað ég hef gert hér síðan í mai, og hef ekið bílnum ca 5000 km.
Eftirfarandi hefur verið skipt um:
- OEM leður gírhnúður
- Viftukúpling
- Miðstöðvarmótstaða
- Pústfestingar fyrir miðju
- Spyrnufóðringar
- Knastásskynjari
- Olíulok
- Ventlalokspakkning
Einnig hef ég pantað eitt og annað smálegt uppá punt, svo sem nýja lista utan allann hringinn, gúmmímottur, hólf í stað kasettugeymslu og hólf í stað cup-holdera afturí.
Búið er að debadge-a bílinn aftan, og verður hann alveg debadge-aður eftir að listarnir koma á, eða eins og hann kom úr verksmiðju.
Þetta að ofan gera kannski um ca. isk 250.000.- með vinnu sem mér finnst mjög vel ásættanlegt á allann hátt.
Mikið meira er ekki planað. Ég hef engann áhuga á að breyta honum í facelift, nema vera skyldi stýrinu, en gæti orðið álappalegt ef ekki er farið alla leið með ljós osfr um leið.
Nokkur atriði finnast mér athygliverð í þessu öllu. Bíllinn var alveg kraftlaus að mata Bjarka í Eðalbílum áður, kraftminni en hann ætti að sér að vera að mati mín og annarra kannski áður en skipt var um knastásskynjarann. Núna er þetta allt annað mál, bíllinn öskrar svoleiðis áfram og vinnslan er allveruleg, að mínu mati allavega.
Annað merkilegt, það smitaði aðeins meðfram olíuloki áður, en um það var skipt. Áður var bíllinn að eyða uþb lítra af olíu pr. 1000-1200 km en eftir skipti á ventlalokspakkningu, virðist það hafa hrapað niður. Það fyndna er að ég kíkti einmitt oft eftir, en sá aldrei undir honum áður oílupolla/leka en sá aldrei. Engu að síður er ég búinn að keyra um 1300 km núna eftir skiptin, og hann er búinn að eyða ca 1/4 af bili á kvarða, eða uþb 1/4 af lítra á þessum 1300 km. Mér finnst þetta frekar magnað allt saman!
Bensínnotkun finnst mér svo sem hæfileg. Frá upphafi er meðaleyðsla uþb 15 lítrar pr 100km. Hreinn innanbæjarakstur er að skila þetta 18-19 lítrum, en notkun undanfarnar vikur 13-15 lítrum enda lítið sem ekkert notaður í snatt.
Bíllinn er verulega þéttur og góður, hvergi brak né önnur leiðindahljóð að heyra né finna og krafturinn orðinn allverulegur eins og áður sagði. Ég er því farinn að halda að eintakið sé betra en ég hélt í upphafi.
Meiningin var að modda þennann uppá annað að ári liðna, en að ofansögðu gefnu, fer þetta að verða spurning!
Ef bíllinn væri ekki grútskítugur niður í kjallara, tæki ég nú nokkrar myndir, en það fær að hinkra!
G
PS, ég gef Bjarka og meðreiðarsveinum hjá Eðalbílum mín allra, allra bestu meðmæli á allann hátt fyrir sína þjónustu!
e39 M5 Carbon Schwartz
Audi A3 "Sportback" 1.6 TDi Miljöpowah!
e9 CSA 1973