Eitthvað meira að gerast.
Ég skipti um bremsuhlífina hérna að neðan, númer 15, þar sem hún hafði brotnað og það var farið að ískra í þessu þar sem hún rakst í bremsudiskinn.

Ég óska engum að þurfa að skipta um þetta drasl. Fyrir það fyrsta kostar þessi hlutur sem er jafn einfalt að framleiða eins að þrykkja kókdós um 10.000 kall og svo er rifið sem þarf til að koma þessu fyrir alveg magnað. Það þarf að taka undan dekkið, bremsudæluna, bremsudiskinn, nafið og svo þarf að rífa hjólalegu-unitið úr til að geta smellt þessu á. Þetta tók mig um 4 tíma, aðalega þar sem boltarnir sem halda hjólalegunni voru svo fastir í að það þurfti gríðarleg átök til að leysa þetta. TLC (tender, love and care) er ekki það eina sem þessi þarf heldur er líka þörf á blóði svita og tárum.
Lagaði líka rafmagnaða stuðninginn í bílstjórasætinu, en það þurfti nú ekki að gera meira en að smella plöggunu aftur í samband. Ég er amk fjórði eigandinn að þessum bíl þar sem þetta hefur verið í ólagi og menn greinilega einbeitt sé að öðru viðhaldi.
Ég er líka kominn með nýjan topplúgumótor sem virkar en lúgan situr eitthvað einkennilega í sleðanum þ.a. það þarf að stilla þetta aftur inn. Einhver sem veit um einhvern með svarta beltið í topplúgustillingum ?
Er að lokum líka kominn með pre-facelift króm nýru og er að fíla þau betur en svörtu nýrun sem voru. Samt spurning hvort maður ætti að hafa facelift nýru.
Listinn yfir hluti sem eru í ólagi er óðum að styttast, á morgun tékka ég á Toms upp á lit á framsætunum.
