Uppboðslistinn er aldrei kominn inn fyrr en seint á föstudeginum fyrir uppboð.
Það er vegna þess að yfirleitt á föstudeginum eru starfsmenn Vöku að raða upp bílunum og gera allt klárt fyrir uppboðið. Það þarf að fylgjast vel með því hvort það eru ekki allir bílarnir komnir sem eiga að vera á uppboðinu, skrá hvaða bílar eru með lykla. Það er skoðað léttilega hvort eitthvað af persónulegum munum eða annað dót sem ekki tengist bílunum er í bílunum, það er tekið úr og sett í geymslu. Sumir kröfuhafar fara með bílana í þrif og létta ástandsskoðun (í von um það að fá meira fyrir bílinn og þá meira upp í kröfuna), sumir af ykkur hafa örugglega séð skýrsluna í frammrúðunum á bílunum á uppboðunum. Mjög oft á meðan á uppröðun stendur á föstudegi þá er sumum bílum frestað og þeir eru þá helst teknir af uppboðssvæði og settir í geymsluportið. Svo þegar búið er að raða bílunum þá er þeir númeraðir, margir sem hafa aldrei áttað sig á þessu númerakerfi, en það er í raun mjög einfalt. Allavega á gamla staðnum uppí í Eldshöfða þá var byrjað inni í húsi, næst pontunni, 1,2,3,.... og áfram. Og svo áfram úti vinstra megin í portinu, byrjað við uppboðsshúsið og talið niður að girðingu og svo hægra megin í portinu og niður og svo ef eitthvað var fyrir utan portið eða inni í gömlu blikksmiðjunni. Reikna fastlega með því að það verði eitthvað svipað kerfi núna á nýja staðnum í Skútuvogi 8.
Allavega, það er ekki fyrr en búið er að raða öllum bílunum og allt tjékkað sem loksins uppboðslistinn er búinn til, og það er yfirleitt ekki fyrr en sennipartinn á föstudeginum. Svo er það ekki fyrr en allt er tilbúið sem listinn er svo settur á netið. Ég man eftir einu skipti í hittifyrra sem allt var tilbúið á fimmtudagskvöldi, en listinn var ekki settur inn ef ské kynni að einhverjar breytingar skyldu verða á föstudeginum.
Annars í sambandi við listann á netinu og myndbirtingu, það hafa verið mjög skiptar skoðanir um það. Sumir vilja ekki að bílnúmerin sjáist fyrr en á uppboðsdaginn. Á tímabili vildu þeir ekki einu sinni hafa myndirnar. Þetta er eitthvað með að vera ekki að auglýsa eða sýna bílinn fyrr en það er orðið nokkuð pottþétt að hann fari á uppboð.
Í sambandi við listann sem er birtur viku fyrir uppboð í mogganum eða fréttablaðinu þá er bara listi yfir bíla sem eru svokallað auglýstir. Semsagt, flestir þeirra er komin krafa á og næsta skref er að setja þá á uppboð ef umráðamaður borgar ekki það sem hann skuldar eða semur um skuldina. Það eru samt ekki allir bílanir svoleiðis, einhverjir bílarnir koma aftur og aftur, þá er einhversskonar, veit ekki hvort ég má kalla það rekstrarleigusamningur eða hvað það er nákvæmlega. Hef aldrei fengið almennilega útskýringu á því, en það er einhver samningur í gangi og þeir færu aldrei á uppboð.
Þannig að þótt það séu kannski 1500 bílar auglýstir þá enda kannski ekki nema 60-100 bílar á uppboðinu sjálfu. Það eru alltaf einhver hluti af bílum sem búið að vörslusvipta sem fólk borgar skuldina þegar það hefur misst bílinn og semur um skuldina, og getur þá fengið bílinn aftur eða að minnsta kosti komist hjá því að bíllinn fari á næsta uppboð. Þótt einhverjir skili bílunum sjálfir inn (mjög lítið um það) Þá eru aðrir í því að fela bílana og þá koma fyrirtæki eina og vörslusvipting inn í málið sem eru fyrirtæki sem eru í því að leita að bílum og taka þá svo þegar þeir finnast. Ég veit til þess að menn hafi verið að bítta á bílum við félaga sína, þannig að bíllinn sem skuldin er á er aldrei fyrir framan heimili, vinnu eða aðra staði sem skuldari er á. Svo eru menn í því að fela bíla. T.d. veit um einn sem var farið með út á land inn í hlöðum undir hey.
-- Jæja, held ég sé búinn að röfla nóg, klukkan er að verða 04:00 og ég er alveg að sofna, og tölvan alltaf að bögga mig á því að ég verði að restarta henni fyrir eitthvað update, svo ef þetta er einhver tóm vitleysa og ekkert samhengi í þessu hér fyrir ofan þá biðst ég forláts.
_________________ Sverrir Már
Fyrri BMW: BMW 518i E34 ´91 / BMW 735iA E32 ´92 / BMW 535iA E34 ´89 / BMW 318iA E36 ´93
|