Tækniþjónusta bifreiða.

Hér skal spjalla um BMW.

Tækniþjónusta bifreiða.

Postby Gummi » Fri 08. Nov 2002 13:35

Í dag fór ég í tækniþjónustu bifreiða til að kaupa klossa og þreifara. Það er nú kannski ekkert merkilegt en þegar ég er búinn að kaupa klossana þá segir Hafþór í TB mér frá hugmynd sem hann og stofnendur þessa klúbbs hafi viðrað nú í haust.
Hugmyndin er að hafa dag, kannski í vor, þar sem félögum þessa klúbbs gefst tækifæri til að láta mæla (í dyno) kraft Bimmanna sinna. Hinir hæstvirtu stofnendur þessa klúbbs þurfa víst bara að ræða þetta við þá hjá TB til að fá öll smáatriði á hreint en þar er víst talsverður áhugi á samstarfi. Ef af þessu verður þá væri þetta alveg frábært til að mæla mun með eða án kubba og tölvu frá Gstuning.
Einnig nefndi Hafþór að þeir séu að spá að veita öllum félögum í þessum klúbb fastan 15%afslátt hjá sér og gaf hann mér einmitt 15% af því sem ég keypti því hann hélt ég væri einmitt meðlimur. Ég er alveg gríðarlega ánægður með þetta og verð að öllum líkindum fastakúnni hjá TB. :)

Þessu kem ég hér með á framfæri og þurfa stofnendurnir bara að ræða þetta við þá hjá Tækniþjónustu Bifreiða.
Gummi
E-46 320i '00
Honda CBR 1000F '88
Gummi
Búðarkerrubílstjóri
 
Posts: 99
Joined: Mon 02. Sep 2002 00:39

Postby bebecar » Fri 08. Nov 2002 14:19

Það er ekkert nema nice hjá þeim að bjóða þetta. Ég veit þeir hafa boðið rallköppum uppá þetta fyrir keppnir og þetta er bara hið besta mál. Ég er búin að skipta nokkuð við þá og ég er bara mjög sáttur við þá og þeirra þjónustu. Mjög liprir, hjálpsamir og alltaf til í að svara manni þegar maður er að spá eitthvað.
Ingvar Örn || BMW R100RS 1994 || Renault Megane RS Turbo 2009 || Alfa Romeo Duetto 1967 Fast Road
User avatar
bebecar
Barnakerrubílstjóri
 
Posts: 10882
Joined: Tue 03. Sep 2002 12:54
Location: Reykjavík 101

Postby saemi » Fri 08. Nov 2002 16:25

Já, ég er sammála, þeir eru mjög liprir og almennilegir.

Ég fór með ECU úr 635csi bílnum mínum til þeirra í fyrradag, því það asnaðist til að leka vatn inn í það. Var að vona að það væri hægt að gera við það, en ekki var það svo. Hafþór var samt ekkert nema almennilegheitin, og það eru ekki allir sem hefðu kíkt á þetta fyrir mig.

Jæja, þá er bara að fá nýtt ECU í vetur, fyrir sumarið næsta :)

sæmi
User avatar
saemi
Meðlimur
Meðlimur
 
Posts: 10602
Joined: Sun 01. Sep 2002 20:44
Location: Reykjavik

Postby hlynurst » Fri 08. Nov 2002 19:49

Alltaf gaman að heyra um góða þjónustu. Engin spurning að maður beinir viðskiptunum þangað næst. En vonandi þarf maður sem minnst að gera það... það er óþolandi að keyra á bílnum þegar eitthvað virkar ekki og er bilað. :(
hlynurst
Formúlubílstjóri
 
Posts: 2807
Joined: Tue 03. Sep 2002 20:21
Location: Reykjavík

Postby Gunni » Sat 09. Nov 2002 01:23

já þið segið það. ég hef reyndar sjálfur aldrei talað við TB. ég reyndi að tala við þá uppá afslátt og eitthvað, sendi þeim email en þeir svöruðu aldrei. Gunni og Stefán gstuning strákar töluðu við þá uppá dyno daginn og það. þetta er alltsaman mjög sniðugt. en samt hefur maður heyrt leiðinlegar sögur um þá. t.d. þegar bíllinn hans daníels var vitlaust bilanagreindur og svo síðast fór einn meðlimur klúbbsins til þeirra og þeir fundu ekki meinið. þeir tengdu hann í bilanatölvu og skiptu um kerti og hann borgaði 15 þú skall fyrir það. svo kom á daginn að það var vatn í bensíntanknum. bifvélavirkjar hljóta að vita hvernig það lýsir sér :oops:

en sjálfur hef ég enga reynslu af þeim og vill alls ekki vera með neinn róg um þá. mér finnst þetta mjög gott framtak og gæti alveg hugsað mér að fara til þeirra með einhverjar viðgerðir.

kveðja, Gunni
Gunni
Formúlubílstjóri
 
Posts: 3939
Joined: Fri 30. Aug 2002 19:47
Location: London

Postby GHR » Sat 09. Nov 2002 12:48

Ég segi það sama og Gunni -hef ekkert skipt við þá(nema keypt þá varahluti), en ég hef fulla trú á þeim. Hef oft talað við þá í gegnum síma um hitt og þetta og þeir vita alveg hvað þeir eru að segja :D
Hins vegar er ég mjög á móti B&L, þeir á verkstæðinu eru fínir en hinir.....? Varahlutalagerinn er alltof dýr og þeir gefa manni aldrei afslátt. Hef stundum farið þangað og látið athuga með verð á hinum og þessum pörtum og ég fæ aldrei sömu töluna uppgefna aftur á sama hlutinum (4000 kr. og síðan næst 18.000 o.s.frv)

Ég ætla bara að skipta við T.B í framtíðinni, nema maður neyðist til annars :(
BMW 325 (E30), E36 325 og E32 750 (Allt farið)
Í leit að E30 325 eða E34 M5 með hækkandi sól
GHR
Formúlubílstjóri
 
Posts: 1690
Joined: Sat 07. Sep 2002 00:45
Location: BIRK

Postby Bjarki » Sat 09. Nov 2002 13:43

Ég bið alltaf um afslátt þegar í varahlutadeildinni hjá B&L og það hefur bara tekist einu sinni og þá fékk ég 5% afslátt.
Bjarki
E39: 540iA '98
User avatar
Bjarki
Formúlubílstjóri
 
Posts: 2492
Joined: Sat 31. Aug 2002 15:11
Location: Reykjavík

Postby Bjarki » Fri 10. Jan 2003 20:03

Keypti mér stykki í bílinn hjá Tækniþjónustu Bifreiða í dag og fékk 15% afslátt út á klúbbinn! Þeir fá stig hjá mér :D
Bjarki
E39: 540iA '98
User avatar
Bjarki
Formúlubílstjóri
 
Posts: 2492
Joined: Sat 31. Aug 2002 15:11
Location: Reykjavík

Postby Elli Valur » Fri 10. Jan 2003 20:19

Hvað eru þið að væla með B&L ég fæ alltaf aflátt 5-20% eftir því hvernig skapi þeir eru í
Reyndar þá borga ég allt í seðlum :)
TOYOTA Hiace
KAWASAKI KXF 250
Elli Valur
Kassabílstjóri
 
Posts: 137
Joined: Sat 07. Dec 2002 19:50
Location: allavega ekki oní huddinu á BMW

Postby Bjarki » Fri 10. Jan 2003 20:36

Þú hlýtur að vera í B&L ættinni eða þekkja þá eitthvað þarna ég reyni alltaf að vera nice og bið svo um smá afslátt. Jólaafslátt, námsmannaafslátt, BMW-eigenda afslátt o.s.frv en allt kemur fyrir ekki nema einu sinni og þá var ég svo ánægður að ég keypti líka hjá þeim lyklakippu á 2þús þannig að þeir bara græddu á því að gefa mér 5% afslátt! Alltaf þegar ég er að versla í svona litlum sérvöruverslunum þá bið ég alltaf um afslátt og fæ nánast án undantekninga 5-10% afslátt en það munar um minna þegar allt er tekið saman.
Bjarki
E39: 540iA '98
User avatar
Bjarki
Formúlubílstjóri
 
Posts: 2492
Joined: Sat 31. Aug 2002 15:11
Location: Reykjavík

Postby Logi » Sat 11. Jan 2003 22:40

Ég hef ekkert nema gott um Hafþór í TB að segja. Mjög góð þjónusta og fín verð á varahlutum.

Hins vegar í sambandi við B&L þá tilkynnti ég þeim í maí á síðasta ári að ég myndi aldrei versla við þá fyrir eina einustu krónu framar. Ég hafði nokkrum sinnum lennt í frekar lélegri þjónustu hjá þeim, en mælirinn fylltist í maí. Það tók mig 3 vikur að fá hjá þeim uppgerðarsett í bremsudælurnar að aftan! Hringdi nánast á hverjum einasta virka degi í tvær vikur og þetta var alltaf að koma daginn eftir að þeirra sögn.

Fékk reyndar annað settið eftir tvær vikur og þurfti að bíða í viku í viðbót eftir seinna settinu. Þegar það svo kom spurði ég kurteisislega hvort ég fengi ekki smá afslátt vegna þess hversu lengi ég þurfti að bíða. Þá sagðist afgreiðslumaðurinn ekki geta gert það. En sagði við mig að ég þyrfti ekki að borga hraðsendingarkostnaðinn fyrir seinna settið!!!! :shock:
Logi
Formúlubílstjóri
 
Posts: 2725
Joined: Mon 09. Dec 2002 20:32
Location: Hafnarfjörður


Return to Almennar umræður

Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 13 guests