kelirina wrote:
g220 er hentugri fyrir byrjendur. Við að massa þá eru tveir þættir sem skipta máli. Massa efnið og púðarnir. Mismunandi efni er framleidd til að taka mis mikið af lakkinu og einnig eru mismunandi grófir/þéttir púðar framleiddir til að taka mis mikið af lakkinu. Þar kemur að því að blanda efnis og púða skiptir miklu máli hversu vel verkið er unnið og hversu góð útkoman verður í lokin.
Þú ert eflaust með þeim betri í þessum bransa hérna á klakanum, eeeenn mér fynnst þú alltaf láta mössunarvinnuna hljóma svo erfiða og flókna að það sé nánast ekki á færi hvaða aðila sem er sem hefur eitthvað vit í kollinum. Heilu ritgerðirnar um margar gerðist massa, púða og umferða sem þarf að fara.
Ég hef massað bæði nýja bíla með kústarispur, og gamla og upplitaða bíla með frekar illa farið lakk, og alltaf hef ég einungis notað milligrófan massa, sama hvaða tegund hann er, ýmist notað borvél eða alvöru mössunarvél til verksins, nota alltaf sömu gerð af púða, og einungis farið eina góða umferð yfir þá. Og aldrei hef ég klúðrað lakki á bíl, og hef alltaf náð lakkinu eins góðu og hægt er. Svo auðvitað bóna ég þá vel á eftir, og set caranuba vax á þá
Mitt persónulega álit er allavega að sumir menn eru einum of ýktir í þessu þegar kemur að því hversu margar umferðir eru farnar yfir bílana, og mikið af efni og tíma fer bara til spillis.
Mesti tímaþjófurinn finnst mér vera að ná öllum massanum úr samskeytum, rifum og í kringum alla lista eftirá
