Sælir,
Heyrðu rétt í þessu var verið að stoppa mig fyrir dáldið spes hlut. Ég er semsagt
að keyra í Ármúla.... hjá Markinu, Jóa útherja, símanum og fleiri búðum ef fólk
kannast við staðinn. Það eru tvær hraðahindranir þarna sem eru alveg óþolandi.
Ég var semsagt stoppaður fyrir að keyra framhjá hraðahindruninni í staðinn fyrir
að fara yfir hana.
Lögreglumaðurinn sagði að ég mætti ekki keyra á öfugum vegarhelming og að maður
eigi að hægja á sér fyrir hraðahindranir. Það sem ég er að spá, er að ég var vel undir
hámarkshraða, enginn bíll á móti mér, punktalína sem ætti að leyfa framúrakstur og
engin hætta framundan. Er einhver sem þekkir þetta? Að ég meigi ekki fara á hinn
vegarhelming þótt það sé punktalína, engin hætta og engin umferð á staðnum?. Ég er
búinn að leita í reglugerðum og ég sé ekkert sem ætti að banna þetta. Allavega þá er
þetta bara einhver 5000-10.000 í sekt en mér finnst þetta samt böggandi.
Svo var ég kurteis við lögguna en fékk ekkert nema yfirgang og skítkast tilbaka.
Hef aldrei lent í þvílíkum dóna eins og stoppaði mig. Ég hef ekki fengið sekt né punkt
í nokkur ár núna og einnig er ég ekki á sakaskrá og svona er maður verðlaunaður.
Ég spurði hvort það væri ekki sanngjarnt að ég fengi aðvörun og gæjinn missti það,
greip framm í fyrir mér með þvílíkum dónaskap og yfirgangi. Ég er allavega með allt
annað álit á löggum eftir þetta, eru sennilega jafn spilltar og aðri afbrotamenn.
Eru fleiri að lenda í svona eða? Og veit einhver um þetta umferðarbrot sem ég braut?
Kv. Maggi


