Mér finnst MJÖG ólíklegt að menn séu að fara út í fleiri hestöfl nema rúmtak verði minnkað í leiðinni. 600hp Twin Turbo S85 er bara léleg aflaukning. Maður hefði allavega átt að sjá 700hp tölur þar sem að aftermarket er komið með enn meira.
Þetta snýst orðið allt um fuel economy, minni CO2 og mengunarskatta tengda þeim ásamt stefnu EU.
S85 er bíll sem nær ekki sub 15L/100km í evrópulangkeyrslu (130-150km/klst) og fer auðveldlega í 25-30 innanbæjar. Það er bara út úr kú að menn ætli sér að koma með bíl sem eyðir sambærilegu eða meira. M5 mengar rúm 500grömm af CO2 sem þýðir skatta uppá rúmar €1000 pr ár. Slíkar tölur ásamt eyðslunni eru farnar að fæla frá. Í dag vilja menn bara EURO5 bíla (almenningur) og Performance-ið stefnir þangað líka.
Mér fyndist mun líklegra að BMW myndi hreinlega seinka M5 uppfærslunni þangað til að V8TT lausnin er fundin. Líklega einhverskonar útfærsla af S65.
Næsti M3 verður t.d. með 6cyl vel, það hefur verið haft eftir nýja yfirmanni ///M GMBH (Dr Kay Segler) að V6 sé alveg eins líkleg og I6, en túrbínurnar verði (takið eftir) ALLAVEGA tvær. Það hefur verið rúmor í gangi um 3.0L I6 með 3x turbos. BMW hefur verið leiðandi í Turbo Diesel tækninni undanfarið með frábætu twinturbo 3.0L vélinni í x35d bílunum, og núna með x23d vélunum og mér finnst alveg eins líklegt að við eigum eftir að sjá quad turbo V6 mótor í næst M3 og jafnvel eitthvað enn meira exótískt í M5.. V8quadT
V6mótorinn, sem gæti t.d. verið einskonar afklippa af S65 (sem er einskonar afleggjari af S85) gæti verið 3.0L V6 sem væri MJÖG létt staðsett lágt og aftarlega með tveimur túrbínum sem gætu deliverað uþb 100hp hvor. Þá værum við að tala um fræðilegt afl uppá c.a. 450-500 hesta og 500-600nmb tog í léttari umbúðum en núverandi M3. Eitthvað slíkt er það sem menn hafa verið að tala um sem arftaka S85 í next gen M5 nema V8, en ekki þessa reverse TT V8 vél serm er í gangi núna.
Allt snýst þetta um að "feika" emission testin. Minna rúmtak, litlar túrbínur, low down power og minni þyngd.