Hvað væri hagkvæmasta leiðin til að ná vélinni í 170 hestöfl? Nú er hún tiltölulega nýuppgerð og var boruð út nokkuð mikið við þá aðgerð (E34 M5 veit þetta reyndar betur en ég).
Mig langar að ná 170 hestöflum og halda núverandi innspýtingu - næst þetta með heitari ás, hærri þjöppu og pústi? Ég er ekki mjög tæknilega þenkjandi þannig að þið sem eru mér vitrari í þessu endilega látið heyra í ykkur. Það er á döfinni hjá mér að skipta um rockerarmana, væri ekki tilvalið að setja heitari ás í leiðinni og hvað þarf fleira með honum?
Myndi kveikjumagnari hjálpa til?
Þetta er í rauninni það sem ég vilf á og stefni á. Þetta ætti ekki að vera stórmál og vonandi gæti maður réttlætt Alpina strípurnar með svona aðgerð
Já, og togið þyrfti að fara í minnsta kosti 210 NM (upp úr 190 NM).


