Sælir félagar.
Vinur minn lenti í þeirri óheppilegu reynslu að vélin fór hjá honum. Þetta er 120d 4ra ára keyrður 60.000km með fulla þjónustu.
Svo virðist sem það sé "þekkt" vandamál með ákveðnar árgerðir af þessum diesel mótorum, sem er reyndar búið að laga eftir 2006.
Í inntakinu er eitthvað sem líkist throttle butterfly og er kallað "swirl flaps". Tilgangur þeirra er að breyta afstöðu inntaksmanifoldsins líklega útaf eyðslu/afli.
http://www.pmwltd.co.uk/swirl_flaps.pdf ... _flaps.pdfÞað sem gerist, fyrirvaralaust, og án þess að menn geti brugðist við, er að þessi fiðrildi brotna af og detta inn í mótorinn. Fiðrildin sjálf eru úr plasti en stilkarnir sem þau standa á eru úr járni (imagine that). Í dag eru stilkarnir þykkari og brotna því ekki af, eða ættu ekki að gera það.
BMW veit af þessu vandamáli en hefur ekki séð ástæðu til þess að bregast við og innkalla þessi manifold. Félagi minn hefur fengið synjun frá BMW um bætur, en það er samt ekki fullreynt.
Ég skora því á þá sem eiga Diesel BMW's að rannsaka þetta mál, komast að því hvort að þeir eru með bíl sem er líklegur til að lenda í þessu, og hreinlega fjarlægja þessi fiðrildi, nú eða kaupa nýrri manifold.