by Svessi » Sun 17. May 2009 18:35
Ég er ekki með neina töfralausn.
Áður en þú gerir nokkuð myndi ég reyna ath hvort nokkru hafi verið troðið inn í lásinn.
En ég myndi benda þér á að kaupa þér lásaolíu, fæst á flest öllum bensínstöðvum og lítur svipað út eins og efnið sem maður setur í lása til að þeir frjósi ekki, margir sem rugla þessu saman.
Kostar nokkrar hundraðkalla.
(Alls ekki nota WD-40, lásinn getur orðið verri eftirá)
Sprautaðu lásaolíunni inn í lásinn og í kringum ef þú getur.
Notaðu svo bíllykilinn, mæli með að nota varalykil ef þú átt, því þú gætir þurft að þjösnast aðeins á þessu.
Reyndu að snúa aðeins lyklinum og togaðu svo út, getur verið mjög stíft, gott að hafa stóra lyklakippu til að ná betra gripi.
Verður að geta snúið lyklinum aðeins því annars rennur lykillinn bara aftur út.
Lásinn á að vera svoleiðis að lykillinn fer ekki út nema hann sé alveg lóðréttur.
Ég held að það sé svoleiðis að samlæsingin, skottið opnist ekki nema takkinn sé úti.
Gangi þér vel.
Sverrir Már
Fyrri BMW: BMW 518i E34 ´91 / BMW 735iA E32 ´92 / BMW 535iA E34 ´89 / BMW 318iA E36 ´93