Vesen með skottlok á e34

Hér skal spjalla um BMW.

Vesen með skottlok á e34

Postby Vlad » Sun 17. May 2009 17:28

Þannig er það nú að það var greinilega reynt að brjóstast inn í bílinn minn í nótt en hann var læstur... en takkanum á skottlokinu hefur verið alveg þrýst inn og er fastur þar og skottið vill alls ekki opnast.

Gæti verið algjör noobakökuspurning en svar sem fyrst væri vel þegið. :)
Enginn bíll eins og er.
Vlad
Rallýbílstjóri
 
Posts: 1318
Joined: Tue 22. Apr 2008 16:20
Location: Selfoss

Re: Vesen með skottlok á e34

Postby Einsii » Sun 17. May 2009 18:32

Reyndu að plokka takkann út og þá geturu tekið læsinguna af.
Greynilega nokkuð algengt að þessir takkar festist svona inni
Einsii
Formúlubílstjóri
 
Posts: 2413
Joined: Thu 03. Jul 2003 19:32
Location: 105 Reykjavík

Re: Vesen með skottlok á e34

Postby Svessi » Sun 17. May 2009 18:35

Ég er ekki með neina töfralausn.

Áður en þú gerir nokkuð myndi ég reyna ath hvort nokkru hafi verið troðið inn í lásinn.

En ég myndi benda þér á að kaupa þér lásaolíu, fæst á flest öllum bensínstöðvum og lítur svipað út eins og efnið sem maður setur í lása til að þeir frjósi ekki, margir sem rugla þessu saman.
Kostar nokkrar hundraðkalla.
(Alls ekki nota WD-40, lásinn getur orðið verri eftirá)
Sprautaðu lásaolíunni inn í lásinn og í kringum ef þú getur.
Notaðu svo bíllykilinn, mæli með að nota varalykil ef þú átt, því þú gætir þurft að þjösnast aðeins á þessu.
Reyndu að snúa aðeins lyklinum og togaðu svo út, getur verið mjög stíft, gott að hafa stóra lyklakippu til að ná betra gripi.
Verður að geta snúið lyklinum aðeins því annars rennur lykillinn bara aftur út.
Lásinn á að vera svoleiðis að lykillinn fer ekki út nema hann sé alveg lóðréttur.

Ég held að það sé svoleiðis að samlæsingin, skottið opnist ekki nema takkinn sé úti.

Gangi þér vel.
Sverrir Már

Fyrri BMW: BMW 518i E34 ´91 / BMW 735iA E32 ´92 / BMW 535iA E34 ´89 / BMW 318iA E36 ´93

User avatar
Svessi
Go-kartbílstjóri
 
Posts: 446
Joined: Wed 16. Feb 2005 23:49

Re: Vesen með skottlok á e34

Postby Axel Jóhann » Sun 17. May 2009 18:45

Það er þannig. :)
Axel Jóhann Helgason. S. 695-7205


E34 Touring
Musso 2.9TDi

Image
User avatar
Axel Jóhann
Formúlubílstjóri
 
Posts: 9115
Joined: Wed 14. Dec 2005 19:56
Location: Breiðholt, Reykjavík

Re: Vesen með skottlok á e34

Postby Vlad » Sun 17. May 2009 19:57

Takk kærlega fyrir þessi svör, fór út og prófaði aðeins að juðast í þessu með lyklinum, tók ekki nema 5 sek að redda þessu.
Enginn bíll eins og er.
Vlad
Rallýbílstjóri
 
Posts: 1318
Joined: Tue 22. Apr 2008 16:20
Location: Selfoss


Return to Almennar umræður

Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 8 guests