Stanky wrote:
Hvað þarf hann að svíkja marga hérna inni áður en hann verður bannaður?
Er ekki bara hægt að segja "Hann verður að svíkja 10 manns - nú nema einn af top 10 póstmestu aðilunum lendi í honum (fyrir utan Angelic0-) þá verður hann bannaður asap."
Skil ekki afhverju það þarf að hlífa þessum manni.
Varðandi það hvort það á að banna fólk sem er erfitt í viðskiptum á spjallinu er umdeilt. Ég skil það alveg og virði þá skoðun þeirra sem eru ekki sammála mér. Það væri fínt ef aðrir gerðu það sama á móti. Ég vil meina að á meðan fólk brýtur ekki af sér
á spjallinu, þá eigi ekki að banna það á spjallinu. Annað finnst mér óréttlátt. Finnst það eins og ég sagði áður, að refsa á röngum stað. Hitt er annað mál að kannski er hægt að búa þannig um hlutina að t.d. hafi hann ekki aðgang að "til sölu" dálknum, eða að í hvert skipti sem hann auglýsir eitthvað sé fólk varað við því að hann geti verið erfiður. Ég vil meina að hann fari úr þessu eitthvað annað og þá sé enn erfiðara fyrir fólk að vara sig á honum eða átta sig á hvern er við að eiga. Hann mun halda áfram að versla með dót í BMW!
Það er ekkert verið að hlífa einum né neinum á þessu spjalli.
Mazi! wrote:
Þetta sem þú ert að segja er ekkert nema ein
steik
Að sjálfsögðu á að banna menn af spjallborðum þegar þeir eru að nýta sér það spjallborð til slæmra viðskipta
Einnig sniðugt að gefa viku - mánaða bönn fyrir svona og punkta að eilífðarbanni
Flest spjallborð sem ég hef stundað einsog dæmi:
http://vaktin.is ef einhver svíkur viðskipti þarna þá er tekið á því! með banni frá umræðum í vissann tíma og ef ítrekað þá væri það eilífðarbann
Byggir upp
"aga" 
Ég er ekkert að segja neina steik. Ef þú skilur ekki það sem ég er að fara, þá er það þitt mál. En rök mín eru alveg jafn gild og þín.
Mér finnst ekkert
sjálfsagt við að banna fólk sem er erfitt í viðskiptum á spjallborðum. Þessi aðili er ekki
alltaf að svíkja og pretta. Hann hefur líka staðið við orð sín í fullt af tilvikum, þó svo að margt hafi ekki staðist sem hann hefur lofað. Það má vera að það sé leiðin sem verður valin, en ég myndi frekar vilja reyna aðrar leiðir fyrst, eins og t.d. að banna hann í "til sölu" dálknum ef hægt er að sanna á hann svik.
Geirinn wrote:
Sæmi, þetta er MIÐILLINN sem hann notar til að komast í tæri við fólk sem hann er að svíkja.
Viljum við að BMWKraftur sé opinn öllum sem hafa áhuga á að svíkja fólk sem vantar bílavarahluti ? Hvaða skilaboð ertu að senda hérna ?
Þarf hann að svíkja ÞIG til að þú bannir hann ?
Er ekki betra að hafa hann á þessum miðli og vita af honum heldur en að lenda í honum á öðrum miðlum og vera óviðbúinn þar? Að sjálfsögðu viljum við ekki hafa fólk hér inni sem svíkur annað fólk. En það er ómögulegt að útiloka svoleiðis fólk úr þessum heimi, því miður. Það verður alltaf hér inni. Er þá ekki betra að hafa hann hér í gjörgæslu heldur en að hafa hann fyrir utan.
Ég er ekkert að senda nein skilaboð, ég er að segja mína skoðun og það er ekkert dulið þar.
Hann hefur svikið mig bara svo þú vitir það. Hann skuldaði mér 80.000.- krónur í 3 mánuði. Ég leysti það mál í gegnum pm á kraftinum, með þolinmæði og góðu.
Mazi! wrote:
Flott að þetta sé búið,
Mæli samt eindregið með því að þið stjórnendur græjið reglur um kaup og sölu sem virka og er farið eftir til að kljá svona aula einsog Uvis Cevers
Við sem stjórnendur getum ekki gert reglur sem virka þannig að fólk geti ekki svikið og prettað. Það er ómögulegt fyrir okkur að setjast í dómarastól og vera einhver lögregla hér og passa upp á slíkt. Hver og einn verður að passa sig í viðskiptum. En að sjálfsögðu eru ákveðnar reglur sem gilda á þessu spjallborði og við reynum að framfylgja þeim.
GunniT wrote:
með þessu banni er ENGAN veginn hægt að ná í kauðan... ekki sniðugt
Ég er algjörlega sammála.