Atlantsolíubensín klárast líklega áður en nýjar birgðir berast
Ef fram fer sem horfir mun bensín klárast hjá Atlantsolíu á næstu dögum en tíu dagar eru þar til næsta sending berst til landsins, að því er segir í fréttatilkynningu frá fyrirtækinu sem hóf sölu á bensíni í afgreiðslustöð sinni við Kópavogsbraut á fimmtudag. „Birgðir þær sem komu til landsins voru áætlaðar til þriggja vikna. Viðtökur almennings voru slíkar að ævintýri er líkast,“ segir í tilkynningunni.
Þá segir að ljóst sé að salan muni verða tuttugufalt meiri en hjá fyrri söluaðila við Kópavogsbraut 115 en áætlanir sem Atlantsolía gerði á síðasta ári hafi miðað við fimmfalt meiri sölu. „Engin leið var fyrir forráðamenn Atlantsolíu á sjá fyrir slíkar viðtökur,“ segir í tilkynningunni.
„Nú þegar hafa verið gerðar ráðstafanir til að flýta afhendingu á næsta bensínfarmi en þó er ljóst að um 10 dagar muni líða þangað til hann berst til landsins,“ segir í tilkynningunni.
Gaman að sjá fólk styrkja þá svona

Haffi W. Schnurrenberger.