Atlands Olía

Hér skal spjalla um BMW.

Postby ta » Sat 10. Jan 2004 00:41

ég tek alltaf 95. og mig langar að
versla við Atlandsolíu.
í manual er talað um 95,

mit katalysator;
"otto-kraftstoff super unverbleit
mit octanzahl ROZ 95"
'BMW, designed by Germans, driven by tossers' J.C.
User avatar
ta
Rallýbílstjóri
 
Posts: 1376
Joined: Tue 12. Aug 2003 21:45

.

Postby Wolf » Sat 10. Jan 2004 00:56

Árið 1997 kostaði 95okt bensín hjá Orkunni í kópavogi, að meðaltali 65-67 Kr, Það er nú ekki lengra síðan. Eitt fannst mér helvíti fyndið sem ég sá í blöðunum, þ.e forsvarsmaður Olís sagði að hann óttaðist ekki Atlandsolíu, enda hafi þeir alltaf boðið samkeppnishæft verð! Íhvaða draumaheimi er þassi aðili??? Allavega veit ég ekki hvaða samkeppni hann er að tala um ???
"I have not taken any drugs ore anything for a whole week now!" -Oh really? "Yeah, and feel so good I wanna get high!"
-Cheech&Chong

BMW E60 525i xDrive 2008
Wolf
Getawaybílstjóri
 
Posts: 764
Joined: Wed 11. Jun 2003 00:53

Postby jens » Sat 10. Jan 2004 01:01

Hér kemur svolítið fyndið... '86 kostaði lítirinn af bensíni 25 kr.
Gat fyllt skellinöðruna fyrir 100 kr hehe... :rofl:
og það varð að koma út maður og dæla fyrir 100 kr. :lol2:
enginn sjálfsafgreiðsla.
Image
E30 - 325iC - 323iA - 320i - 318iS
E21 - 320
Honda CBR600 F2 Streetfighter
User avatar
jens
Formúlubílstjóri
 
Posts: 5955
Joined: Thu 06. Nov 2003 15:38
Location: Akranes

Postby bebecar » Sat 10. Jan 2004 01:06

Ég held nú að sýnt sé hvað samkeppnishæft verð er þegar Atlantsolía getur ekki boðið betur en einni krónu ódýrara! Augljóslega er núverandi verð þá samkeppnisfært verð, ekki satt?

Ég er nú nokkuð viss um að það sé lengra síðan en 1997 að bensínið hafi kostað tæpar 70 krónur.
Ingvar Örn || BMW R100RS 1994 || Renault Megane RS Turbo 2009 || Alfa Romeo Duetto 1967 Fast Road
User avatar
bebecar
Barnakerrubílstjóri
 
Posts: 10882
Joined: Tue 03. Sep 2002 12:54
Location: Reykjavík 101

Postby oskard » Sat 10. Jan 2004 01:15

kostaði 68kr líterinn þegar ég tók bílpróf fyrir hvað... 5 árum
oskard
 

Postby Gulag » Sat 10. Jan 2004 09:54

það hljóta nú allir að vera sammála því að samkeppni er af hinu góða, og loksins er komin samkeppni í bensínbransann á íslandi, því hver getur talað um að það hafi ríkt samkeppni milli 3-höfðans undanfarna áratugi?

það er engin spurning hvað ég geri, ég versla við AO, það er lítið fyrirtæki með litla yfirbyggingu og þarf á okkar stuðning að halda til að geta haldið samkeppninni við !!!
Gulag
Kassabílstjóri
 
Posts: 148
Joined: Mon 18. Aug 2003 21:41
Location: Suðurnes

Postby bebecar » Sat 10. Jan 2004 11:52

Mér finnst bara skrítið að sjá menn hlaupa upp til handa og fóta út af svona lítilli lækkun.

Ég held ég hafi lesið í mogganum í morgun að hér hafi verið verðlagsráð sem réði bensínverði alveg til ársins 1994, ári síðar opnaði Orkan með sjálfsafgreiðslustöðvar og því er nú Orkan það fyrirtæki sem hefur lækkað verðið á markaðnum mest og eru ennþá lægstir.

Það sést best hvað Orkan hefur staðið sig vel á því að Atlantsolía gat ekki boðið betur en krónu lægra og þó eru þeir með mun minni strúktur fyrir sína stöð.

Eins og ég er búin að segja hér áður og engin virðist vilja vita þá er það nokkuð ljóst í mínum augum að Atlantsolía mun ekki bjóða betur en nú er þar sem kostnaður við byggingu stöðva á eftir að vera miklu meiri þegar þeir koma upp sínum dreifingarstöðvum.

Allt tal um að samkeppni sé tilkominn vegna Atlantsolíu er því bara tómt bull - það hefur verið meira verðstríð í gangi á Akureyri t.d. í fyrra.

Fyrir utan það að einn aðili í viðbót á markað þar sem þrír eru fyrir breytir þessu ekki úr fákeppnismarkað.

En og aftur vil ég ítreka að ég er mjög vonsvikinn að sjá að Atlantsolía standi ekki við stórar yfirlýsingar um að bensínverð myndi lækka verulega. Maður var búin að ímynda sér að það myndi kannski lækka um 10 kall frá lægsta verði.

Lækkunin frá lægsta verði nam ekki nema 1%!!!

Það er líka skondið að heyra forsvarsmenn Atlantsolíu í fréttum kvarta yfir því að Orkan nota efsta stig lýsingarorðs og segi að þeir séu alltaf ódýrastir fyrst þeir lækki meira á einum stað. Svo sér maður þetta á vef Atlantsolíu...
Lægsta verð landsins
Þeir eru nú bara með eina bensínstöð, gengur að tala um lægsta verð landsins þegar það er bara í boði á einum stað?

Er þá ekki alveg eins hægt að segja að SO (standard oil) sé með lægsta verð í heimi - það sé reyndar í Baton Rouge í Bandaríkjunum, en samt lægst í heimi!

Ég held að menn séu algjörlega að skjóta sig í fótinn hérna. Orkan á heiðurinn af lægra bensínverði og ég var nú bara að reka augun í þetta á heimasíðu Orkunnar...
Þú sérð verðið á verðskiltum á bensínstöðvunum og ef þú býrð svo vel að eiga Bensínfrelsiskort færðu sérkjör á öllum stöðvum
- 2 krónu viðbótarafslátt


Sem þýðir að ef þú varst með þetta kort þá var bensínið 1 krónu ódýrara en hjá Atlantsolíu áður en "samkeppnin" hófst!

Lægsta bensínverðið er því 90.40 hjá Orkunni um allt land og 89.40 á völdum stöðvum! Lægsta verð Atlantsolíu er 92.50 (á einu stöð þeirra).

Hvort er nú betri búbót fyrir landann?

http://www.atlantsolia.is/index.asp
http://www.orkan.is/
http://www.ob.is/demo/default.aspx
http://www.esso.is/[/b]
Ingvar Örn || BMW R100RS 1994 || Renault Megane RS Turbo 2009 || Alfa Romeo Duetto 1967 Fast Road
User avatar
bebecar
Barnakerrubílstjóri
 
Posts: 10882
Joined: Tue 03. Sep 2002 12:54
Location: Reykjavík 101

Postby Benzer » Sat 10. Jan 2004 12:49

Er þetta bara ekki byrjunin á verðstríðinu á milli bensínfyrirtækja :?:
Vonandi á þetta eftir að lækka seinna :)
BMW 750 il
BMW Z3
Jeep Grand Cherokee V8 99 árgerð
Husaberg 450 Götuprjónarinn
User avatar
Benzer
Rallýbílstjóri
 
Posts: 1094
Joined: Wed 08. Jan 2003 18:13
Location: Vestmannaeyjar

Postby Gunni » Sat 10. Jan 2004 13:38

Ingvar þú ert svo málaður af Skeljungi að það er ekki fyndið.

Auðvitað versla þeir sem hafa fengið nóg af þessu bulli í bensínfyrirtækjunum hjá Atlantsolíu (þ.e. þeir sem taka 95). Allavega ætla ég að gera það, því ég er búinn að fá nóg af bensínfélögunum. Hefur einhver kíkt á gengið á dollaranum nýlega ?? Hvað gerist þegar hann fer í rétt horf, eða hækkar um kannski 20 kr ?? Má þá ekki reikna með að bensín hækki vel yfir 100 kallinn ??

Við sjáum til...
Gunni
Formúlubílstjóri
 
Posts: 3939
Joined: Fri 30. Aug 2002 19:47
Location: London

Postby Haffi » Sat 10. Jan 2004 13:40

hefði atlans olía ekki komið til að byrja með þá væri benzínverðið ekki undir 90 karlinum neinstaðar... og 60 lítrar af benzíni telur fljótt í budduna þegar það er farið að muna krónum.
Haffi W. Schnurrenberger.
User avatar
Haffi
Formúlubílstjóri
 
Posts: 5729
Joined: Sat 07. Sep 2002 09:55

Postby Schulii » Sat 10. Jan 2004 14:07

og það er svo skrítið hvað stóru félögin virðast skyndilega hafa svigrúm til að lækka í VESTURBÆ KÓPAVOGS

Eins og Gunni benti á að þá nota olíufélögin alltaf tækifærið þegar gengið er óhagstætt til að HÆKKA en svo þegar gengið breytist í hina áttina þá er nánast aldrei LÆKKAÐ - og ég segi "nánast" því þeir hafa örsjaldan gert það til að ekki sé hægt að segja aldrei!!

Svo er annað. Ég benti á að bensínverð hafði hækkað um 50% frá 1993 til ca. ársins 2000 og fleiri hafa tekið undir það með mér þrátt fyrir að Bebecar hafi haldið öðru fram. Ég man að bensínlítrinn kostaði 67 krónur í september 1993 og auðvitað með FULLRI ÞJÓNUSTU!!!

Eitt annað. Það er mjög erfitt fyrir svona smá fyrirtæki eins og AtlantsOlíu að ná fram slíkri hagræðingu í rekstri eins og hjá hinum risavöxnu olíufélögum. Ég ætla ekki að tíunda hér nákvæmlega hvers kyns það er en ég veit bara að eftir því sem fyrirtæki eru stærri geta þeir lækkað hlutfallslega rekstrarkostnaðinn. Þeir geta átt sína eigin deild sem gerir hitt og þetta þar sem minni fyrirtæki þurfa alltaf að kaupa sér slíka þjónustu fyrir hvert skipti. Það að AtlantsOlía skuli hafa getað verið ódýrari heldur en stóru félögin þó ekki stærri í sniðum en þeir eru segir mér aðeins eitt: AÐ STÓRU FÉLÖGIN HAFA TÖLUVERT MEIRA SVIGRÚM TIL AÐ VERA ÓDÝRARI EN ÞEIR ERU NÚ

Þess vegna ætla ég að styrkja AtlantsOlíu því ef þeir ná aðeins meiri stærðargráðu sé ég fyrir mér að þeir gætu farið miklu lægra en þeir eru að gera núna. Hitt er svo annað. Hvort þeir geri það þegar þeir stækka er önnur spurning en ég hef engu að tapa..
BMW 520d E61
Schulii
Formúlubílstjóri
 
Posts: 2028
Joined: Mon 26. May 2003 21:06
Location: Reykjavík

Postby Gunni » Sat 10. Jan 2004 15:15

Akkúrat. Við höfum eiginlega bara eitthvað að græða. Atlantsolía er að fara að byggja nýja stöð núna, það er búið að taka fyrstu skóflustunguna. Hún verður í hafnarfirði minnir mig og ég las það að hún kostaði 25 millur. Þannig að það er eins gott að við styrkjum þá þannig að þeir geti komið sér upp fleiri stöðvum. Svo ef þeir detta í sama farið og hin olíufélögin þegar þeir eru orðnir stórir og ríkir, þá er ekkert annað en að brenna bara stöðvarnar þeirra ;)
Gunni
Formúlubílstjóri
 
Posts: 3939
Joined: Fri 30. Aug 2002 19:47
Location: London

Postby bebecar » Sat 10. Jan 2004 15:34

Gunni, haltu þig við efnið og rökin sem ég set fram.

Auðvitað vill maður að bensínverð lækki enn frekar.

En eina sem ég benti ykkur á er að bensínið var ódýrara með þessum kortaafslætti hjá Orkunni heldur en hjá Atlantsolíu og þar af leiðandi get ég ekki séð hvernig hægt er að tala um einhverja byltingu í samkeppni.

Ég get heldur ekki séð að verðstríð hafi "skollið" á þegar bensínverðið var hvort eð er lægra áður en þessi bensínsala hófst.

Mér finnst þetta bara asnalegt.

Afhverju versla ekki allir í Krónunni eða Europris? Vegna þess að Bónus er þrátt fyrir allt ennþá ódýrari, vissulega eru þeir örugglega með svigrúm til lækkana eins og hagnaður hefur sýnt. En þeir eru samt ennþá ódýrastir.

Og hvaða glóra væri í því að að olíufélag yrði að lækka verð allstaðar á sínum stöðvum ef að samkeppnisaðili rekur bara eina bensínstöð með lægra verði.

Við erum að tala um milljónir lítra í sölu á móti kannski 200 þúsund lítrum hjá Atlantsolíu... 3 krónu afsláttur af því magni kostar Atlantsolíu þá 600 þúsund en stóra olíufélagið tugi milljóna.

Ég sagði reyndar áður á þræðinum að það væru örugglega 10 ár (kannski 15 ár) síðan bensín kostaði 67 krónur, ég mundi það ekki og gat ekki fundið upplýsingar um það. En það eru líka 10 ár síðan. Ég fullyrði að matvara, tryggingar, húsnæði og þjónustugjöld hafa öll hækkað meira síðustu 10 ár.

Ekki gleyma því að verð á bensíni á Íslandi er fullkomlega sambærilegt við verðið erlendis og hefur verið það lengi.

Þið hljótið að sjá að þetta gengur ekki upp hjá Atlantsolíu... ef þeir geta ekki boðið betur en þetta núna miðað við uppbygginguna núna þá munu þeir svo sannarlega ekki gera það þegar þeir eru að greiða niður 4-6 25 milljón króna stöðvar.

Nú í dag eru þeir með ólöglega verktakadælu í Hafnarfirði og leiga gamla bensínstöð í Kópavogi fyrir hitt. Algjör lágmarks uppbygging en verðið samt ekki lægra en þetta.
Ingvar Örn || BMW R100RS 1994 || Renault Megane RS Turbo 2009 || Alfa Romeo Duetto 1967 Fast Road
User avatar
bebecar
Barnakerrubílstjóri
 
Posts: 10882
Joined: Tue 03. Sep 2002 12:54
Location: Reykjavík 101

Postby Haffi » Sat 10. Jan 2004 16:34

Gæti verið að einhver vinni hjá SHELL <<<<<<<<<<<<<<<<<<<<
Haffi W. Schnurrenberger.
User avatar
Haffi
Formúlubílstjóri
 
Posts: 5729
Joined: Sat 07. Sep 2002 09:55

Postby bebecar » Sat 10. Jan 2004 16:39

Ég hef nú reyndar lítið talað um Skeljung, aðallega um Orkuna.

Það er eftir sem áður algerlega óhrakið það sem ég hef sagt hér á undan.

Það er ekkert sem bendir til stórkostlegra breytinga á bensínverði með tilkomu Atlantsolíu og það eru vonbrigði!
Ingvar Örn || BMW R100RS 1994 || Renault Megane RS Turbo 2009 || Alfa Romeo Duetto 1967 Fast Road
User avatar
bebecar
Barnakerrubílstjóri
 
Posts: 10882
Joined: Tue 03. Sep 2002 12:54
Location: Reykjavík 101

PreviousNext

Return to Almennar umræður

Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 4 guests