Atlands Olía

Hér skal spjalla um BMW.

Atlands Olía

Postby Ozeki » Fri 09. Jan 2004 18:36

Jæja þeir eru víst farnir að selja Bensín líka .. á nú samt eftir að kíkja á þá ... ég fylli bílinn alltaf og hann fer alltaf rúmlega 500 km á tanknum, en nú fer að koma að því að fylla. Þá fer ég beint í Kópavoginn og fylli hjá Atlands Olíu og ætla að leggja lykkju á leið mína ef nauðsyn krefur í framtíðinni og tanka bara hjá þeim.

Látum samráðs-svínin finna fyrir því og tönkum bara hjá AO
User avatar
Ozeki
Kassabílstjóri
 
Posts: 167
Joined: Wed 16. Oct 2002 15:12
Location: Hér og Nú

Postby oskard » Fri 09. Jan 2004 18:38

er atlandsolía með svona skítabensín eins og ÓB og orkan eða er
þetta gott stuff eins og shell ? :roll:
oskard
 

Postby bjahja » Fri 09. Jan 2004 18:48

Ég ætla nebblega ekki að versla við þá, en vona bara að þeim takist að draga niður verðin hjá hinum :wink:
bjahja
Meðlimur
Meðlimur
 
Posts: 9014
Joined: Sat 28. Dec 2002 19:49
Location: Italia

Postby Benzer » Fri 09. Jan 2004 19:08

Þar sem ég er nú í Vestmannaeyjum og þar er enginn Atlandsolía :(
Þá hef ég nú bara alltaf verslað við shell sem er mjög gott :)
BMW 750 il
BMW Z3
Jeep Grand Cherokee V8 99 árgerð
Husaberg 450 Götuprjónarinn
User avatar
Benzer
Rallýbílstjóri
 
Posts: 1094
Joined: Wed 08. Jan 2003 18:13
Location: Vestmannaeyjar

Postby Svezel » Fri 09. Jan 2004 19:39

Selja þeir nokkuð 98okt? Minn vill ekki drekka 95
E36 M3 US | Jeep Grand Cherokee Limited V8
User avatar
Svezel
Formúlubílstjóri
 
Posts: 6870
Joined: Mon 02. Sep 2002 11:04
Location: á hjólinu

Postby Benzer » Fri 09. Jan 2004 20:26

Ég held að þeir séu bara með 95okt bensín...
BMW 750 il
BMW Z3
Jeep Grand Cherokee V8 99 árgerð
Husaberg 450 Götuprjónarinn
User avatar
Benzer
Rallýbílstjóri
 
Posts: 1094
Joined: Wed 08. Jan 2003 18:13
Location: Vestmannaeyjar

Postby Schulii » Fri 09. Jan 2004 20:45

bíddu nú við.. eruð þið að segja mér að þið setjið 98 okt bensín á bílana ykkar??? og er þetta virkilega það slæmt bensín að þið ætlið ekki að styrkja þá til að helv**** samráðs svínin fari að finna fyrir því??

Sko.. ég fékk bílpróf fyrir 10 árum. Fyrir 3 árum þá höfðu þær breytingar átt sér stað síðan ég fékk bílpróf að það er búið að endurnýja allan bensínstöðvaflotann á höfuðborgarsvæðinu, bensínið hefur hækkað um 50% og það eru allir farnir að dælabensíninu sjálfir.

..ég ætla á AtlantsOlíu!!
BMW 520d E61
Schulii
Formúlubílstjóri
 
Posts: 2028
Joined: Mon 26. May 2003 21:06
Location: Reykjavík

Postby Schulii » Fri 09. Jan 2004 20:46

..og já, ég á 8cyl bimma :?
BMW 520d E61
Schulii
Formúlubílstjóri
 
Posts: 2028
Joined: Mon 26. May 2003 21:06
Location: Reykjavík

Postby bjahja » Fri 09. Jan 2004 20:48

Ég ætla því miður ekki að versla við AO vegna þess að ég er svo sérvitur og vitlaus ða ég kaupi mér alltaf V-power :wink: Og ef ég man rétt þá er mælt með því að það sé sett 98 á Clioinn
bjahja
Meðlimur
Meðlimur
 
Posts: 9014
Joined: Sat 28. Dec 2002 19:49
Location: Italia

Postby Svezel » Fri 09. Jan 2004 21:26

Jamm clio vill ekki 95, bara 98+. Setti einu sinni eða tvisvar á hann 95 og þá gekk hann frekar gróft.

Myndi versla við AO ef þeir væru með 98okt og ekki með stöð í þarna út í r#$%&*!* :lol:
E36 M3 US | Jeep Grand Cherokee Limited V8
User avatar
Svezel
Formúlubílstjóri
 
Posts: 6870
Joined: Mon 02. Sep 2002 11:04
Location: á hjólinu

Postby saemi » Fri 09. Jan 2004 21:55

ég kaupi nú bara standard 95 okt bensín. Og já, ég ætla að leggja lykkju á leið mína og tanka hjá strákunum á Kársnesinu!
Sæmi

E24 645csi, E23 745i E28 M5, E34 525ix, 518g, 525tds, M5T, E53 4.6is,
User avatar
saemi
Meðlimur
Meðlimur
 
Posts: 10602
Joined: Sun 01. Sep 2002 20:44
Location: Reykjavik

Postby bebecar » Fri 09. Jan 2004 22:21

Þetta er samskonar bensín og Orkan, ÓB og Esso Express selja.

Ég vil hinsvegar benda þér Svezel á að þú færð 98 okt á einu stað hjá Orkunni og það er úti á Eiðistorgi - og auðvitað á fínu verði líka.

Svo vil ég nú biðja menn að velta þessum hlutum fyrir sér.

Bensín er ekki dýrt á Íslandi, í það minnsta ekkert dýrara en víða í kringum okkur.

Samráð eða ekki samráð þá vil ég benda á það sem mér finnst athygliverðast í þessu og það er að Atlantsolía kemur á markað bensín og auðvitað bjóst maður við almennilegri verðlækkun, en hvað gerist. Þeir bjóða bensín á krónu lægra verði en Orkan var með það á kvöldið á undan!

Ég verð nú bara að segja að mér finnst það bara alls ekkert merkilegt!!! Og þaðan af síður þess virði að ég keyri þangað til að taka bensín.

Auk þess er Orkan búin að lofa frá stofnun lægsta verðinu og hann hefur alltaf staðið við það. Samkeppnin kemur þaðan þó fyrirtækið sé í eigu Shell.

Og síðan hvenær ertu að miða við að bensín hafi hækkað um 50%??? Það er nú ekki rétt. Ef svo væri þá hefði það kostað 66 krónur og það eru nú meira 10 ár síðan bensínið kostaði svo lítið, líklega meira en 15 ár!

Ég vil líka minna menn á að á sama tíma (15 árum) hefur húsnæðisverð örugglega hækkað um meira en 100% og mjólk (sem mér finnst alltaf gaman að taka til samanburðar) hefur hækkað úr 25 í held ég 85 krónur eða nokkur hundruð prósent!

Það hefur öll síðustu ár eða frá því að Orkan opnaði verið virk samkeppni í eldsneytisverði og það sést einmitt best á því að Atlantsolía getur ekki boðið nema krónu betur en Orkan (sem auðvitað lækkaði meira eins og lofað var).
Ingvar Örn || BMW R100RS 1994 || Renault Megane RS Turbo 2009 || Alfa Romeo Duetto 1967 Fast Road
User avatar
bebecar
Barnakerrubílstjóri
 
Posts: 10882
Joined: Tue 03. Sep 2002 12:54
Location: Reykjavík 101

Postby Bimmser » Fri 09. Jan 2004 22:28

bebecar wrote:Og síðan hvenær ertu að miða við að bensín hafi hækkað um 50%??? Það er nú ekki rétt. Ef svo væri þá hefði það kostað 66 krónur og það eru nú meira 10 ár síðan bensínið kostaði svo lítið, líklega meira en 15 ár!


Þegar ég fékk bílprófið, fyrir 9 árum, kostaði líterinn af 95 oktana 67 krónur, svo endilega kallinn að passa upp á þetta :wink:
Nissan Almera SLX, 1996 - heimilisbíllinn.
BMW 320i, 1993 - seldur.
Bimmser
Kassabílstjóri
 
Posts: 113
Joined: Fri 20. Jun 2003 19:12
Location: 104 Reykjavík

Postby Svezel » Fri 09. Jan 2004 22:32

Já ég er nú sammála þér bebecar með þetta, þetta er í raun ekkert rosa mál, lækka bensín um 1kr frá keppinaut. Þetta væri frétt ef þeir hefðu tekið 10kr af. Eini staðurinn sem ég veit að bensín er eitthvað ódýrara svo talandi sé um er í Bandaríkjunum, þar er aftur á móti allt annar markaður.

Málið er að ríkið er að hirða 60% af bensínverðinu eins og sást um daginn þegar Esso opnaði í Mosfellsbæ og seldi án skatts í einhvern klukkutíma, þar var 95okt á 37kr.

Annars vissi ég að Orkan á Eiðistorgi seldi 98okt, en vissi ekki aftur á móti að það væri eina stöðina. Ég tek þar þegar ég er mjög nískur en annars V-power eða Esso 98okt.
E36 M3 US | Jeep Grand Cherokee Limited V8
User avatar
Svezel
Formúlubílstjóri
 
Posts: 6870
Joined: Mon 02. Sep 2002 11:04
Location: á hjólinu

Postby bebecar » Fri 09. Jan 2004 22:38

Ég tek nánast alltaf V-Power en einstaka sinnum 98 okt úti á nesi.

Þetta er nú bara tilfellið. Menn verða bara að sætta sig við að hér er sáralítið svigrúm til lækkana á bensíni nema ríkið taki sig til og lækki skatta á okkur bifreiðaeigendur. Nóg er nú sótt í okkar vasa.

Varðandi samráðsmálin þá held ég að menn geri sér flestir grein fyrir því að ef um samráð hefur verið að ræða þá hefur það allavega ekki falist í því að hafa hátt verð á bensíni. Þetta verður ekkert lægra en það er núna.

Ég sé t.d. ekki fyrir mér að Atlantsolía haldi þessu verði ef þeir ætla að fara byggja sjálfsafgreiðslustöðvar fyrir reksturinn með niðurgröfnum tönkum, sjálfsala, dælum og skyggni. Ef verðið er ekki lægra en þetta núna (þegar ekki þarf að byggja stöðvar) þá mun það svo sannarlega ekki lækka.

Ég held því að Orkan sé hagstæðust sem fyrr og það er sennilega í krafti stærðar Skeljungs (innkaup) og svo fyrirkomulags Orkunnar (lágmarks yfirbygging).
Ingvar Örn || BMW R100RS 1994 || Renault Megane RS Turbo 2009 || Alfa Romeo Duetto 1967 Fast Road
User avatar
bebecar
Barnakerrubílstjóri
 
Posts: 10882
Joined: Tue 03. Sep 2002 12:54
Location: Reykjavík 101

Next

Return to Almennar umræður

Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 29 guests