by bebecar » Fri 09. Jan 2004 22:21
Þetta er samskonar bensín og Orkan, ÓB og Esso Express selja.
Ég vil hinsvegar benda þér Svezel á að þú færð 98 okt á einu stað hjá Orkunni og það er úti á Eiðistorgi - og auðvitað á fínu verði líka.
Svo vil ég nú biðja menn að velta þessum hlutum fyrir sér.
Bensín er ekki dýrt á Íslandi, í það minnsta ekkert dýrara en víða í kringum okkur.
Samráð eða ekki samráð þá vil ég benda á það sem mér finnst athygliverðast í þessu og það er að Atlantsolía kemur á markað bensín og auðvitað bjóst maður við almennilegri verðlækkun, en hvað gerist. Þeir bjóða bensín á krónu lægra verði en Orkan var með það á kvöldið á undan!
Ég verð nú bara að segja að mér finnst það bara alls ekkert merkilegt!!! Og þaðan af síður þess virði að ég keyri þangað til að taka bensín.
Auk þess er Orkan búin að lofa frá stofnun lægsta verðinu og hann hefur alltaf staðið við það. Samkeppnin kemur þaðan þó fyrirtækið sé í eigu Shell.
Og síðan hvenær ertu að miða við að bensín hafi hækkað um 50%??? Það er nú ekki rétt. Ef svo væri þá hefði það kostað 66 krónur og það eru nú meira 10 ár síðan bensínið kostaði svo lítið, líklega meira en 15 ár!
Ég vil líka minna menn á að á sama tíma (15 árum) hefur húsnæðisverð örugglega hækkað um meira en 100% og mjólk (sem mér finnst alltaf gaman að taka til samanburðar) hefur hækkað úr 25 í held ég 85 krónur eða nokkur hundruð prósent!
Það hefur öll síðustu ár eða frá því að Orkan opnaði verið virk samkeppni í eldsneytisverði og það sést einmitt best á því að Atlantsolía getur ekki boðið nema krónu betur en Orkan (sem auðvitað lækkaði meira eins og lofað var).
Ingvar Örn || BMW R100RS 1994 || Renault Megane RS Turbo 2009 || Alfa Romeo Duetto 1967 Fast Road