by Svessi » Fri 20. Mar 2009 14:02
Eftir því sem ég hef heyrt þá er þetta eins og einarsss sagði hér fyrr:
Ef þú (eða fyrri eigandi) hefur lagt númerplöturnar sjálfur inn þá getur þú sjálfur náð í þær og hefur viku til að koma bílnum í skoðun, ef hann er óskoðaður þar að segja.
Það er samt ekki ætlast til þess að fólk sé að nota bílana eitthvað áður en það er farið með þá í skoðun, þú hefur bara þessa 7 daga til að koma bílnum í skoðun.
Veit dæmi þess að strákur tók svona út númerið á bílnum sínum og fór út að rúnta á laugardagskvöldi með félagana með sér, löggan stoppaði hann og klippti af því bíllinn var óskoðaður og hann var alveg hundfúll og skildi ekki afhverju löggan klippti af því hann hélt virkilega að hann hefði 7 daga sjéns.
Ef lögreglan hefur klippt númerin af vegna skoðunar þá verður þú sjálfur að koma bílnum á skoðunarstöðina númerlausum, færð ekki númerin fyrr en þú hefur farið í gegnum skoðun og ég held að þú verðir alveg örugglega að vera búinn að borga bifreiðagjöldin líka.
Svo á ekki að vera neitt mál að hringja eða fara niður í umferðastofu eða niður á næstu skoðunarstöð og komast að því hvar númerin eru niðurkomin, og ef svo ber undir að láta flytja þau á milli staða, tekur yfirleitt nokkra daga og átt ekki að þurfa borga neitt fyrir það.
p.s. svo vegna þess að við erum að tala um bifreiðaskoðun.
Ég fór með pajeroinn í skoðun í morgun því hann átti að fara í skoðun á síðasta ári og sektirnar verða lagaðar á núna í apríl - 15.000 kr, ég fékk endurskoðun útaf slappri legu og spyrnufóðringum, en allavega, maður fær einn mánuð og eftir þann tíma er það bara orðinn 15.000 kr sekt og full skoðun aftur.
Ég fór í Aðalskoðun og þar er full skoðun um 8000 kr og endurskoðun 1500 kr
Í frumherja er það 7300 kr
Endalaust peningaplokk allsstaðar.
Sverrir Már
Fyrri BMW: BMW 518i E34 ´91 / BMW 735iA E32 ´92 / BMW 535iA E34 ´89 / BMW 318iA E36 ´93