Sækjanúmerplötur fyrir bíl sem klippt var af ?

Hér skal spjalla um BMW.

Sækjanúmerplötur fyrir bíl sem klippt var af ?

Postby Rednex » Wed 18. Mar 2009 15:55

Sælir

Hvernig er það með bíla sem keyptir hafa verið á Vöku-uppboði og löggan hefur klippt af plöturnar, hvar sækir maður þær ?

Er þetta hjá löggunni í Reykjavík, því hún klippti af honum, eða er þetta hjá Birfreiðaeftirlitinu ?
E30 325 MTech II '88

If it works... don´t fix it ;)
Rednex
Búðarkerrubílstjóri
 
Posts: 52
Joined: Tue 10. May 2005 23:03
Location: Hafnfirðingur !

Re: Sækjanúmerplötur fyrir bíl sem klippt var af ?

Postby ValliFudd » Wed 18. Mar 2009 15:58

Þú getur væntanlega ekki sótt þær ef það var klippt af t.d. vegna þess að bíllinn fór ekki í skoðun. Þá þarftu að láta senda þær á skoðunarstöðina sem þú ætlar að láta skoða bílinn á..

En ég veit ekki, endar þetta ekki allt hjá Umferðarstofu? www.us.is
User avatar
ValliFudd
Formúlubílstjóri
 
Posts: 5709
Joined: Mon 26. May 2003 22:39
Location: Reykjavík

Re: Sækjanúmerplötur fyrir bíl sem klippt var af ?

Postby Ingsie » Wed 18. Mar 2009 16:00

Ef það var klippt af bílnum á höfuðborgarasvæðinu þá eru þær í umferðarstofu. 5802000, getur hringt og ath hvort þær séu þar opið frá 8-4
Ef það var klippt af bílnum vegna þess að hann er óskoðaður þá verðuru að láta skoða bílinn fyrst til þess að fá plöturnar (Getur látið senda plöturnar á hvaða skoðunarstöð sem er)
Ef það var klippt af honum vegna þess að bílinn var ótryggður þá er nóg að vera búin að hringja í tryggingafélagið og fá staðfestingu á tryggingu.

*edit* já og aðeins skráður eigandi má sækja plöturnar, nema að fólk sé með umboð.
E21 - E30 - E36
User avatar
Ingsie
Formúlubílstjóri
 
Posts: 1525
Joined: Sun 14. May 2006 14:00
Location: Hér & þar

Re: Sækjanúmerplötur fyrir bíl sem klippt var af ?

Postby Rednex » Wed 18. Mar 2009 16:55

Takk fyrir þetta :)
E30 325 MTech II '88

If it works... don´t fix it ;)
Rednex
Búðarkerrubílstjóri
 
Posts: 52
Joined: Tue 10. May 2005 23:03
Location: Hafnfirðingur !

Re: Sækjanúmerplötur fyrir bíl sem klippt var af ?

Postby íbbi_ » Thu 19. Mar 2009 01:06

er búið að taka vikufrestinn út sem maður hafði? þ.e.a.s maður fékk plöturnar og hafði viku til að koma honum í skoðun
M.benz E320 Family Wagon
Chevrolet Silverado vinnujálkur
Chevrolet Silverado skúrajálkur
Cadillac eldorado 1973, ísbíll
User avatar
íbbi_
Formúlubílstjóri
 
Posts: 12484
Joined: Tue 27. May 2003 07:47

Re: Sækjanúmerplötur fyrir bíl sem klippt var af ?

Postby Einarsss » Thu 19. Mar 2009 08:05

íbbi_ wrote:er búið að taka vikufrestinn út sem maður hafði? þ.e.a.s maður fékk plöturnar og hafði viku til að koma honum í skoðun



Það er í gildi ef þú hefur lagt inn plöturnar sjálfur, sennilega annað ef að lögreglan hefur "klippt" plöturnar af
Fullt af CF sem rúllar
User avatar
Einarsss
Formúlubílstjóri
 
Posts: 12513
Joined: Tue 28. Jun 2005 23:13
Location: Bitch viltu dick?

Re: Sækjanúmerplötur fyrir bíl sem klippt var af ?

Postby íbbi_ » Thu 19. Mar 2009 08:06

djö! það á nú eftir að valda einhverri seinkun hjá manni :aww:
M.benz E320 Family Wagon
Chevrolet Silverado vinnujálkur
Chevrolet Silverado skúrajálkur
Cadillac eldorado 1973, ísbíll
User avatar
íbbi_
Formúlubílstjóri
 
Posts: 12484
Joined: Tue 27. May 2003 07:47

Re: Sækjanúmerplötur fyrir bíl sem klippt var af ?

Postby Svessi » Fri 20. Mar 2009 14:02

Eftir því sem ég hef heyrt þá er þetta eins og einarsss sagði hér fyrr:

Ef þú (eða fyrri eigandi) hefur lagt númerplöturnar sjálfur inn þá getur þú sjálfur náð í þær og hefur viku til að koma bílnum í skoðun, ef hann er óskoðaður þar að segja.
Það er samt ekki ætlast til þess að fólk sé að nota bílana eitthvað áður en það er farið með þá í skoðun, þú hefur bara þessa 7 daga til að koma bílnum í skoðun.
Veit dæmi þess að strákur tók svona út númerið á bílnum sínum og fór út að rúnta á laugardagskvöldi með félagana með sér, löggan stoppaði hann og klippti af því bíllinn var óskoðaður og hann var alveg hundfúll og skildi ekki afhverju löggan klippti af því hann hélt virkilega að hann hefði 7 daga sjéns.

Ef lögreglan hefur klippt númerin af vegna skoðunar þá verður þú sjálfur að koma bílnum á skoðunarstöðina númerlausum, færð ekki númerin fyrr en þú hefur farið í gegnum skoðun og ég held að þú verðir alveg örugglega að vera búinn að borga bifreiðagjöldin líka.

Svo á ekki að vera neitt mál að hringja eða fara niður í umferðastofu eða niður á næstu skoðunarstöð og komast að því hvar númerin eru niðurkomin, og ef svo ber undir að láta flytja þau á milli staða, tekur yfirleitt nokkra daga og átt ekki að þurfa borga neitt fyrir það.

p.s. svo vegna þess að við erum að tala um bifreiðaskoðun.
Ég fór með pajeroinn í skoðun í morgun því hann átti að fara í skoðun á síðasta ári og sektirnar verða lagaðar á núna í apríl - 15.000 kr, ég fékk endurskoðun útaf slappri legu og spyrnufóðringum, en allavega, maður fær einn mánuð og eftir þann tíma er það bara orðinn 15.000 kr sekt og full skoðun aftur.
Ég fór í Aðalskoðun og þar er full skoðun um 8000 kr og endurskoðun 1500 kr
Í frumherja er það 7300 kr

Endalaust peningaplokk allsstaðar.
Sverrir Már

Fyrri BMW: BMW 518i E34 ´91 / BMW 735iA E32 ´92 / BMW 535iA E34 ´89 / BMW 318iA E36 ´93

User avatar
Svessi
Go-kartbílstjóri
 
Posts: 446
Joined: Wed 16. Feb 2005 23:49


Return to Almennar umræður

Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 29 guests