Lakkviðgerðir

Hérna getur þú varpað fram spurningum um tæknilega hluti eða þá deilt visku þinni með hinum um BMW.

Lakkviðgerðir

Postby jens » Thu 08. Jan 2009 11:06

Ég er að laga bíl sem ég á og langar að fræðast aðeins um lakkviðgerðir.

Þegar búið er að vinna á riðinu og búið er að setja sérstakt riðbreyti efni er þá á ekki gott að grunna sárið áður en farið er að sparsla, hvaða grunn er best að nota. Riðvarnargrunn eða eru í lagi að nota sama grunn og notaður er undir lakk.

Mig langar að fræðast um þegar sprautað er yfir gamalt lakk er nóg að matta gamla lakkið eða þarf að grunna yfir áður en nýtt lakk er sett á.

Annað sem væri gott að fá svör við er að þegar búið er að sprauta litnum hvað er æskilegt að líði langur tími á milli lakks og glæru.

Tekið skal fram að þetta er ekki bíll sem fer á neinar sýningar og að aðstæður eru í kringum 15°c þar sem sprautað er.

Góðar stundir.
Image
E30 - 325iC - 323iA - 320i - 318iS
E21 - 320
Honda CBR600 F2 Streetfighter
User avatar
jens
Formúlubílstjóri
 
Posts: 5955
Joined: Thu 06. Nov 2003 15:38
Location: Akranes

Postby JonHrafn » Thu 08. Jan 2009 12:12

Vona þér sé sama þótt ég bæti við einni spurningu, en ég er í nákvæmlega sömu hugleiðingum og þú nema minn er verr farinn. Þarf að sjóða í skemmdir.

Maður hefur heyrt margar útgáfur af því hvernig menn vilja sjóða, sumir vilja setja alveg yfir, borga göt fyrir suðuna í samskeitin, allar útgáfur, með hverju mæla menn?
JonHrafn
Rallýbílstjóri
 
Posts: 1210
Joined: Mon 17. Feb 2003 11:51
Location: Keflavík south

Re: Lakkviðgerðir

Postby Helgi M » Thu 08. Jan 2009 18:39

jens wrote:Ég er að laga bíl sem ég á og langar að fræðast aðeins um lakkviðgerðir.

Þegar búið er að vinna á riðinu og búið er að setja sérstakt riðbreyti efni er þá á ekki gott að grunna sárið áður en farið er að sparsla, hvaða grunn er best að nota. Riðvarnargrunn eða eru í lagi að nota sama grunn og notaður er undir lakk.

Mig langar að fræðast um þegar sprautað er yfir gamalt lakk er nóg að matta gamla lakkið eða þarf að grunna yfir áður en nýtt lakk er sett á.

Annað sem væri gott að fá svör við er að þegar búið er að sprauta litnum hvað er æskilegt að líði langur tími á milli lakks og glæru.

Tekið skal fram að þetta er ekki bíll sem fer á neinar sýningar og að aðstæður eru í kringum 15°c þar sem sprautað er.

Góðar stundir.


Mæli með að þú notir epoxy grunn, það er mjög sterkur grunnur sem hefur líka mjög góða viðloðun.

Ef að gamla lakkið er "vel" með farið, það er að segja lítið af ójöfnum og öðru þá er nóg að matta það, einnig gott að setja fylligrunn þá yfir þær minnstu ójöfnur, ef að það er mikill litamismunur á lakkinu sem er á bílnum og því sem þú ert að fara að setja á "svart/hvítt" skaltu setja sama grunn yfir allt svæðið sem verður málað, annars gæti orðið góður litamismunur.

Ef þú notar vatnslakk er nóg að það sé orðið alveg matt áður en þú setur glæru á, líka gott að fylgja "loftunartíma" sem framleiðandi mælir með, en þar sem þú ert sirka 7 gráðum undir heppilegum hita þá tekur það lengri tíma hjá þér að þorna. Ef þú notar acrýl lakk skaltu vera rúmlega loftunartímann sem framleiðandinn mælir með.

Einnig ef að þetta verður "bílskúrsmálað" þá er best fyrir þig að hafa alltaf gólfið blautt til að binda niður rykið þar sem það getur farið á sveimi þá þegar þú ert að bíða á milli loftunartíma jafnvel sem væri verra.
Ekki nógu margir
User avatar
Helgi M
Meðlimur
Meðlimur
 
Posts: 494
Joined: Mon 11. Jul 2005 18:45
Location: Reykjavík

Postby Dóri- » Thu 08. Jan 2009 22:37

JonHrafn wrote:Vona þér sé sama þótt ég bæti við einni spurningu, en ég er í nákvæmlega sömu hugleiðingum og þú nema minn er verr farinn. Þarf að sjóða í skemmdir.

Maður hefur heyrt margar útgáfur af því hvernig menn vilja sjóða, sumir vilja setja alveg yfir, borga göt fyrir suðuna í samskeitin, allar útgáfur, með hverju mæla menn?


Ég geri þetta þannig að ég sker úr, grunna sárið vel 2 umferðir, set plötu sem er aðeins stærra en gatið með slatta af kítti á, svo er þetta punktað, grunnað, svo troðið meira af kítti og svo grunnað og svo tectyl.

það er ekki sniðugt að heilsjóða í stór göt, þar sem málmurinn skreppur saman.

Er að tala um göt sem maður gerir við innanfrá eins og í skotti.
User avatar
Dóri-
Formúlubílstjóri
 
Posts: 2042
Joined: Fri 04. Mar 2005 16:35

Postby Gummco » Thu 08. Jan 2009 22:55

ekki nota ryðbreyti,er alls ekki virka,Epoxy best og láta þorna yfir nótt er gott :D
mundu að kraftsmenn eru með 15 prósent afslátt hjá Málningarvörum(sikkens)
kv Gummi
BMW E 92 árg 2008
volvo s 80 D 5 árg 2003
M Benz S 500 árg 1994
M Benz 230 E coupe árg 1990
Gummco
Kassabílstjóri
 
Posts: 179
Joined: Sun 09. Mar 2008 21:39
Location: Reykjavík

Postby JonHrafn » Thu 08. Jan 2009 23:27

Ryðbreytir, er það stuffið sem á að stoppa rið?
JonHrafn
Rallýbílstjóri
 
Posts: 1210
Joined: Mon 17. Feb 2003 11:51
Location: Keflavík south

Postby gunnar » Thu 08. Jan 2009 23:42

JonHrafn wrote:Ryðbreytir, er það stuffið sem á að stoppa rið?


Nei fjandinn hafi það

:lol:
Image
BMW E30 328i Coupe
User avatar
gunnar
Formúlubílstjóri
 
Posts: 11549
Joined: Tue 13. Jan 2004 23:15
Location: Reykjavík

Postby Helgi M » Fri 09. Jan 2009 00:40

Gummco wrote:ekki nota ryðbreyti,er alls ekki virka,Epoxy best og láta þorna yfir nótt er gott :D
mundu að kraftsmenn eru með 15 prósent afslátt hjá Málningarvörum(sikkens)
kv Gummi


Ekki vissi ég af afslættinum... en nýti mér hann þó pottþétt núna :D
Ekki nógu margir
User avatar
Helgi M
Meðlimur
Meðlimur
 
Posts: 494
Joined: Mon 11. Jul 2005 18:45
Location: Reykjavík

Postby jens » Fri 09. Jan 2009 10:55

Afhverju ekki að nota riðefni ?
Image
E30 - 325iC - 323iA - 320i - 318iS
E21 - 320
Honda CBR600 F2 Streetfighter
User avatar
jens
Formúlubílstjóri
 
Posts: 5955
Joined: Thu 06. Nov 2003 15:38
Location: Akranes

Postby raxions » Wed 14. Jan 2009 17:29

Hafiði einhverja hugmynd um hversu mikið kostar að laga ryðblett á bíl sem er sirka 2 títuprjónshausar í þvermál?

Er orðinn frekar hræddur um að þetta skemmi meira út frá sér innan skamms, verð að fara að gera eitthvað í þessu.
Er best að rúnta bara milli lakkverkstæða og sjá hvað þetta kostar?
750iL E38
User avatar
raxions
Kassabílstjóri
 
Posts: 156
Joined: Mon 05. Mar 2007 00:58


Return to Tæknilegar umræður

Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 22 guests