Hringadróttinsaga og önnur verk Tolkien

Langar þig til að segja eitthvað, en þú veist ekki hvar það á heima?! Segðu það hér!

Hringadróttinsaga og önnur verk Tolkien

Postby bjornvil » Sun 04. Jan 2009 14:29

Sælir félagar

Ég er mikill aðdáandi myndanna sem Peter Jackson gerði, og hef mikinn áhuga á öllu sem tengist þessari sögu og verkum Tolkien, en ég hef aldrei komið mér í að lesa bækurnar sjálfar. Þá er ég að tala um Hringadróttinsögu, og aðrar bækur sem tengjast Miðgarði (The Hobbit, Silmarillion, Children of Húrin)

Það sem ég á erfitt með að ákveða, er hvort ég eigi að lesa þær á ensku, málinu sem þær voru skrifaðar á, eða á ég að treysta því að Íslensku þýðingarnar séu góðar og geri efninu almennileg skil.

Nú veit ég ekki hvort það séu til íslenskar þýðingar á Silmarillion og Children of Húrin, en ég mundi helst vilja lesa allar á sama málinu.

Hvað segið þið, er einhver hérna búinn að lesa eitthvað af þessu bæði á íslensku og ensku?
BMW E39 523i '99 M Parallels "seldur"
VW Passat '98 "seldur"
VW Golf GTI '98 "seldur"
BMW E30 320i M-tech I '86 "dáinn" :(
User avatar
bjornvil
Rallýbílstjóri
 
Posts: 1278
Joined: Mon 12. May 2003 14:38
Location: Keflavík

Postby Kristjan » Sun 04. Jan 2009 14:36

Upprunalegu Íslensku þýðingarnar á Lord Of The Rings eru einar þær bestu sem ég hef lesið af öllum þýðingum. Enda var sú þýðing notuð sem hliðstæða þegar myndirnar voru textaðar.

Ég las bækurnar fyrst á Íslensku og svo á ensku og mér fannst sagan skila sér fádæma vel á Íslensku. Svo ég verð að mæla með Íslenskunni.
Enginn BMW
User avatar
Kristjan
Formúlubílstjóri
 
Posts: 8507
Joined: Tue 10. Jun 2003 15:49
Location: 101 RVK

Postby bebecar » Sun 04. Jan 2009 14:38

Íslenska þýðingin er afburða góð þannig að þú verður ekkert svikinn af henni. Ég hef lesið bæði þó það sé langt síðan. Ég held þú ættir bara að láta þetta ráðast af smekk eða bara hvað er hendi næst :wink:
Ingvar Örn || BMW R100RS 1994 || Renault Megane RS Turbo 2009 || Alfa Romeo Duetto 1967 Fast Road
User avatar
bebecar
Barnakerrubílstjóri
 
Posts: 10882
Joined: Tue 03. Sep 2002 12:54
Location: Reykjavík 101

Postby bragi1 » Sun 04. Jan 2009 14:48

Mér fannst allavega þegar ég sá myndirnar eins og það væri búið að þýða þær frá íslensku yfir á ensku. Fannst nöfn og staðarheiti skila sér mikið betur á okkar ástkæra.
BMW 118i
User avatar
bragi1
Go-kartbílstjóri
 
Posts: 299
Joined: Mon 24. Apr 2006 15:37
Location: Hafnarfjörður

Postby Einsii » Sun 04. Jan 2009 16:40

Var ísland ekki einhvernveigin inblástur að því sem tolkien var að skrifa.
Nöfn og fleira þessvegna frekar norræn.
Einsii
Formúlubílstjóri
 
Posts: 2413
Joined: Thu 03. Jul 2003 19:32
Location: 105 Reykjavík

Postby Jón Ragnar » Sun 04. Jan 2009 17:06

Tolkien talaði íslensku og svona held ég

Tesla Model Y
User avatar
Jón Ragnar
Formúlubílstjóri
 
Posts: 11978
Joined: Sun 25. May 2003 23:50
Location: ::1

Postby Aron Andrew » Sun 04. Jan 2009 18:04

Ég á allar bækurnar á íslensku.

Skal selja þér þær, held meira að segja að þær séu ennþá í plastinu :lol:
BMW E46 318i Touring
User avatar
Aron Andrew
Formúlubílstjóri
 
Posts: 7764
Joined: Sun 23. Nov 2003 22:49
Location: Kópavogur

Postby Einarsss » Sun 04. Jan 2009 18:11

bara búinn að lesa þetta á íslensku og það var ekki leiðinlegt.
Fullt af CF sem rúllar
User avatar
Einarsss
Formúlubílstjóri
 
Posts: 12513
Joined: Tue 28. Jun 2005 23:13
Location: Bitch viltu dick?

Postby Alpina » Sun 04. Jan 2009 18:21

JR Ewing
Sv.H

E30 CABRIO V12 M70B50 ///
ALPINA B10 BITURBO 346 @ 507
E34 550 V12 JML


(OO[][]OO)

http://alpina.123.is/pictures/
Sabine Schmitz wrote:"Fear disturbs your concentration."
User avatar
Alpina
Formúlubílstjóri
 
Posts: 33023
Joined: Tue 03. Sep 2002 18:17
Location: Ascari // Nürburgring

Postby bjornvil » Sun 04. Jan 2009 19:11

Ok, lítur út fyrir að ég taki bara Íslenskuna á þetta. :)

Veit einhver hvort Children of Húrin sé komin út í íslenskri þýðingu? Hún kom út 2007. Ég veit að Silmaríllinn er komin út á íslensku.
BMW E39 523i '99 M Parallels "seldur"
VW Passat '98 "seldur"
VW Golf GTI '98 "seldur"
BMW E30 320i M-tech I '86 "dáinn" :(
User avatar
bjornvil
Rallýbílstjóri
 
Posts: 1278
Joined: Mon 12. May 2003 14:38
Location: Keflavík

Postby Misdo » Mon 05. Jan 2009 01:24

ég átti að lesa the hobbit fyrir ensku þannig ég prófaði að kíkja á youtube til að kanna hvort það hefði verið búinn til einhver mynd um hana kom einhver teiknimynd ogég verð að viðurkenna að hún var furðu góð
Stefán Haukur
VW Golf MKV Gti
VW Golf MK4 seldur
BMW E36 323i Seldur
Honda Civic Seldur
BMW 318ia E36 rifinn
You'll Never Walk Alone
User avatar
Misdo
Formúlubílstjóri
 
Posts: 1586
Joined: Thu 23. Nov 2006 22:36

Postby Tjobbi » Mon 05. Jan 2009 01:45

bjornvil wrote:Ok, lítur út fyrir að ég taki bara Íslenskuna á þetta. :)

Veit einhver hvort Children of Húrin sé komin út í íslenskri þýðingu? Hún kom út 2007. Ég veit að Silmaríllinn er komin út á íslensku.


Silmerillinn er kominn út á íslenskri þýðingu en Children of Húrin ekki.

Lestu þær í þeirri röð sem þú skrifaðir efst.
Mercedes Benz 190E 2.0 92'

Mercedes Benz 250E 2.5 82'
Tjobbi
Búðarkerrubílstjóri
 
Posts: 83
Joined: Thu 09. Nov 2006 12:41

Postby bjornvil » Mon 05. Jan 2009 01:57

Tjobbi wrote:
bjornvil wrote:Ok, lítur út fyrir að ég taki bara Íslenskuna á þetta. :)

Veit einhver hvort Children of Húrin sé komin út í íslenskri þýðingu? Hún kom út 2007. Ég veit að Silmaríllinn er komin út á íslensku.


Silmerillinn er kominn út á íslenskri þýðingu en Children of Húrin ekki.

Lestu þær í þeirri röð sem þú skrifaðir efst.


Meinarðu ekki að lesa þær í þessari röð?
Hobbitinn - Hringadróttinsaga - Silmaríllinn - Children of Húrin

Hefði haldið að það sé eðlilegast að lesa þær í þessari röð.
BMW E39 523i '99 M Parallels "seldur"
VW Passat '98 "seldur"
VW Golf GTI '98 "seldur"
BMW E30 320i M-tech I '86 "dáinn" :(
User avatar
bjornvil
Rallýbílstjóri
 
Posts: 1278
Joined: Mon 12. May 2003 14:38
Location: Keflavík


Return to Off-Topic umræður

Who is online

Users browsing this forum: Google [Bot] and 5 guests