Sælir félagar
Ég er mikill aðdáandi myndanna sem Peter Jackson gerði, og hef mikinn áhuga á öllu sem tengist þessari sögu og verkum Tolkien, en ég hef aldrei komið mér í að lesa bækurnar sjálfar. Þá er ég að tala um Hringadróttinsögu, og aðrar bækur sem tengjast Miðgarði (The Hobbit, Silmarillion, Children of Húrin)
Það sem ég á erfitt með að ákveða, er hvort ég eigi að lesa þær á ensku, málinu sem þær voru skrifaðar á, eða á ég að treysta því að Íslensku þýðingarnar séu góðar og geri efninu almennileg skil.
Nú veit ég ekki hvort það séu til íslenskar þýðingar á Silmarillion og Children of Húrin, en ég mundi helst vilja lesa allar á sama málinu.
Hvað segið þið, er einhver hérna búinn að lesa eitthvað af þessu bæði á íslensku og ensku?
