Það er ekki sama hver er að versla! Ég rölti þarna inn, er almennt ekki mikið fyrir að brenna aurinn minn en ákvað að styrkja smávegis.
Er að skoða úrvalið og sé þar 'þekktan' einstakling sem er að versla við hlið mér. Sá aðili er að versla 6x flugeld A og 1 x Flugeld B ásamt gleraugum og smádóti.
Ég spyr aðilann sem er að afgreiða mig hvað flugeldur a kosti, sem og flugeldur b, svörin eru: A: 1850 og B: 2000 krónur, gleraugun voru á 300 krónur og eitthvað smádót. S.s samtals pakki uppá 13.400 krónur + stjörnuljós.
Ég versla mér smá dót þarna og er rukkaður 3000 krónur fyrir flugeld B og smádót.
Hinn aðilinn gengur út með alla þessa flugelda fyrir 5.500 krónur!
Þetta er auðvitað alveg fáránlegt, mennirnir aggitera að ég eigi að versla við þá til að hjálpa þeim að ganga í gegnum komandi rekstrarár og halda uppi góðum hópi, en ég er í raun bara að borga fyrir afslátt kunningja og vina ? Þetta er alveg ólýðandi að svona gerist en þar sem þetta er ísland er auvðitað klíka - en að gera það þá aðeins minna augljóst.
Hvorki ég né fjölskylda mín mun leggja þessari sveit lið á komandi árum eða áratugum.
Absúrd
kv
Jón en ekki Séra Jón.


