Flugbjörgunarsveitin sem er að selja uppí B&L

Langar þig til að segja eitthvað, en þú veist ekki hvar það á heima?! Segðu það hér!

Flugbjörgunarsveitin sem er að selja uppí B&L

Postby krullih » Wed 31. Dec 2008 14:23

Það er ekki sama hver er að versla! Ég rölti þarna inn, er almennt ekki mikið fyrir að brenna aurinn minn en ákvað að styrkja smávegis.

Er að skoða úrvalið og sé þar 'þekktan' einstakling sem er að versla við hlið mér. Sá aðili er að versla 6x flugeld A og 1 x Flugeld B ásamt gleraugum og smádóti.

Ég spyr aðilann sem er að afgreiða mig hvað flugeldur a kosti, sem og flugeldur b, svörin eru: A: 1850 og B: 2000 krónur, gleraugun voru á 300 krónur og eitthvað smádót. S.s samtals pakki uppá 13.400 krónur + stjörnuljós.

Ég versla mér smá dót þarna og er rukkaður 3000 krónur fyrir flugeld B og smádót.

Hinn aðilinn gengur út með alla þessa flugelda fyrir 5.500 krónur!

Þetta er auðvitað alveg fáránlegt, mennirnir aggitera að ég eigi að versla við þá til að hjálpa þeim að ganga í gegnum komandi rekstrarár og halda uppi góðum hópi, en ég er í raun bara að borga fyrir afslátt kunningja og vina ? Þetta er alveg ólýðandi að svona gerist en þar sem þetta er ísland er auvðitað klíka - en að gera það þá aðeins minna augljóst.

Hvorki ég né fjölskylda mín mun leggja þessari sveit lið á komandi árum eða áratugum.

Absúrd

kv
Jón en ekki Séra Jón.
User avatar
krullih
Go-kartbílstjóri
 
Posts: 469
Joined: Mon 13. Sep 2004 18:02

Postby Geirinn » Wed 31. Dec 2008 14:25

Welcome to Iceland.
E30 325i Coupe - Shadowline | SELDUR
User avatar
Geirinn
Formúlubílstjóri
 
Posts: 2399
Joined: Fri 02. Sep 2005 19:28

Postby krullih » Wed 31. Dec 2008 14:26

Geirinn wrote:Welcome to Iceland.


Þetta er líka að fara að fréttast - nýársheiti mitt er klárlega að vera virkur í neytendamálum og segja frá svona rugli á kvippinn og kvappinn.
User avatar
krullih
Go-kartbílstjóri
 
Posts: 469
Joined: Mon 13. Sep 2004 18:02

Postby bimmer » Wed 31. Dec 2008 14:28

Spurðir þú ekkert af hverju hinn fékk þetta svona ódýrt?
Þórður
'99 M5 SC // '89 M3 S85 // '04 Patrol GR
Image
Alpina wrote:S85 er vondur mótor þó að hann sé kraftmikill...
User avatar
bimmer
Formúlubílstjóri
 
Posts: 15952
Joined: Sun 02. Nov 2003 21:17
Location: Reykjavík

Postby krullih » Wed 31. Dec 2008 14:30

Nei, gerði gott betur og hringdi beint í Formann félagsis.

Þess má geta að honum gat varla verið meira sama og datt ekki einusinni í hug að biðjast afsökunar.
User avatar
krullih
Go-kartbílstjóri
 
Posts: 469
Joined: Mon 13. Sep 2004 18:02

Postby Kristjan » Wed 31. Dec 2008 14:31

Hver var sá frægi?
Enginn BMW
User avatar
Kristjan
Formúlubílstjóri
 
Posts: 8507
Joined: Tue 10. Jun 2003 15:49
Location: 101 RVK

Postby Geirinn » Wed 31. Dec 2008 14:32

http://www.niskupukinn.is/spjall/

Vettvangur sem á eftir að stækka og stækka... hvort það verði þessi síða eða önnur... skiptir ekki... ef þetta skilar einhverjum árangri þá er makmiðinu náð...
E30 325i Coupe - Shadowline | SELDUR
User avatar
Geirinn
Formúlubílstjóri
 
Posts: 2399
Joined: Fri 02. Sep 2005 19:28

Postby krullih » Wed 31. Dec 2008 14:32

Frægi er ekki rétta orðið, þekktari er Jói úr Simmi & Jói - ágætis útvarpstvíeiki
User avatar
krullih
Go-kartbílstjóri
 
Posts: 469
Joined: Mon 13. Sep 2004 18:02

Postby krullih » Wed 31. Dec 2008 14:35

Geirinn wrote:http://www.niskupukinn.is/spjall/

Vettvangur sem á eftir að stækka og stækka... hvort það verði þessi síða eða önnur... skiptir ekki... ef þetta skilar einhverjum árangri þá er makmiðinu náð...


Flott framtak - en ef ég myndi virkilega láta þá brenna þá myndi ég fara á ER.is - 400 konur sem gera ekkert nema að tala við aðrar konur virkar bara eins og olía og eldspíta á stóran sinublett :)
User avatar
krullih
Go-kartbílstjóri
 
Posts: 469
Joined: Mon 13. Sep 2004 18:02

Postby Aron Fridrik » Wed 31. Dec 2008 14:35

hvað ef þetta var bróðir hans Jóa ? :lol:
BMW E34 ///M5
User avatar
Aron Fridrik
Formúlubílstjóri
 
Posts: 4778
Joined: Sun 04. Jun 2006 14:39

Postby krullih » Wed 31. Dec 2008 14:42

Aron Fridrik wrote:hvað ef þetta var bróðir hans Jóa ? :lol:


Að selja honum þá ? Það á bara ekki að skipta NEINU máli.
User avatar
krullih
Go-kartbílstjóri
 
Posts: 469
Joined: Mon 13. Sep 2004 18:02

Postby Geirinn » Wed 31. Dec 2008 14:51

Ein pæling með þessa flugelda....

Það er einhver pakki hjá Ársæli sem er Trölli eða álíka.... sem ég man að ég keypti fyrir nokkrum árum á vel undir 10 þúsund... minnir að það hafi verið 7.900 kr....

Núna er þessi sami pakki, óbreyttur á 19.900 kr ?

Man einhver annar eftir þessu ?

Þetta er ein brjálæðislegasta verðhækkun sem ég hef tekið eftir í þessum flugeldamálum...

Það er verið að hvetja okkur til að versla hjá björgunarfélögum... ég skil það vel... en það er virkilega verið að mjólka mann ógeðslega...

Hafið þið tekið eftir ámóta verðhækkunum hjá öðrum ?

Núna bjóða þeir líka 1.500 kr. úttekt aukalega ef maður kaupir fyrir meira en 10.000 kr..... var það ekki nær 5.000 kr. í fyrra eða ?

Ég keypti ekki flugelda fyrir eina krónu í ár.....
E30 325i Coupe - Shadowline | SELDUR
User avatar
Geirinn
Formúlubílstjóri
 
Posts: 2399
Joined: Fri 02. Sep 2005 19:28

Postby IvanAnders » Wed 31. Dec 2008 14:58

Ég get ekki að því gert, en þetta er eini vettvangurinn þar sem mér er sama þó verið sé að "mjólka" mig :lol:

Það er farið svo illa að manni í mikið meiri nauðsynjakaupum og öðru í kringum mann þar sem að ekki ein króna fer í að styrkja gott málefni!

Mér er alveg sama hvað ég fæ mikið af púðri fyrir peninginn, mín ástæða fyrir kaupunum er að ég er að styrkja þá!



ég er líka rjúpnaskytta :lol:
Alpina wrote:er þetta utandeildin eða hvað er að gerast ,,,
User avatar
IvanAnders
Formúlubílstjóri
 
Posts: 3733
Joined: Mon 02. May 2005 21:23
Location: 108

Postby bimmer » Wed 31. Dec 2008 15:02

Geirinn wrote:Ég keypti ekki flugelda fyrir eina krónu í ár.....


Það er út af fólki eins og þér sem þarf að rukka hina meira!!!

Stoltur?!?!?!

:lol:
Þórður
'99 M5 SC // '89 M3 S85 // '04 Patrol GR
Image
Alpina wrote:S85 er vondur mótor þó að hann sé kraftmikill...
User avatar
bimmer
Formúlubílstjóri
 
Posts: 15952
Joined: Sun 02. Nov 2003 21:17
Location: Reykjavík

Postby Geirinn » Wed 31. Dec 2008 15:03

IvanAnders wrote:Ég get ekki að því gert, en þetta er eini vettvangurinn þar sem mér er sama þó verið sé að "mjólka" mig :lol:

Það er farið svo illa að manni í mikið meiri nauðsynjakaupum og öðru í kringum mann þar sem að ekki ein króna fer í að styrkja gott málefni!

Mér er alveg sama hvað ég fæ mikið af púðri fyrir peninginn, mín ástæða fyrir kaupunum er að ég er að styrkja þá!



ég er líka rjúpnaskytta :lol:


Gallinn er bara að hættan er sú að fólk versli þá frekar við einkaaðila sem eru bara í þessu til að græða....

Kom með góða hugmynd að auglýsingu fyrir björgunarsveitirnar..... "við björgum líka bílasölum og bröskurum...." :lol:
E30 325i Coupe - Shadowline | SELDUR
User avatar
Geirinn
Formúlubílstjóri
 
Posts: 2399
Joined: Fri 02. Sep 2005 19:28

Next

Return to Off-Topic umræður

Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 79 guests