Sælir meðlimir.
Það er alltaf e-ð smá vandamál með þennan blessaða vatnskassa í bílnum mínum.
Málið er það að ég lét skipta um vatnsdælu í honum um daginn og nuna kemur alltaf smá gufa frá vatnskassanum þegar það er búið að keyra á honum í dágóða stund, en ekkert er gefið upp í tölvu og hitamælirinn á sínum stað og hann hitar sig alveg venjulega.
Þetta skéði líka áður en ég skipti um vatnsdæluna og þá fór ég með hann uppí TB og þeir sögðu að það þyrfti bara lofttæma kassann sem þeir gerðu, það virkaði ágætlega í viku þá byrjaði þetta aftur, svo núna er ég búinn að lofttæma vatnskassann en enn skéður þetta.
Hafið þið einhverja hugmynd um hvað þetta gæti verið ?

