burri wrote:mig er farið að gruna loftflæði skynjaran því han er farinnnað ganga verri hægagang en hann gerði
hægagangurinn getur verið furðulegur ef að það sé stífluð sían fyrir öndunina á vélinni!
þessi sía er staðsett undir hlífinni sem er yfir vélinni og ofaná ventlalokinu.
Bíllinn reykir stundum bláu ef að þetta sé orðið stíflað.
Svo væri ekkert vitlaust að rífa hosuna sem fer úr intercoolernum og inn á vélina og tékka á því hvort að það sé mikil drulla í EGR ventlinum.
þegar ég skoðaði þetta í mínum var bara 1cm gat, olíudrulla og sót fast.
Þegar ég fékk minn var loftsían alveg handónýt og eyðslan minnkaði rosalega við loftsíuskipti, bara muna eftir að snúa loftsíunni rétt, annars brotnar af loftsíunni og fer í túrbínuna á endanum.
Svo gæti líka verið að hvarfinn sé ónýtur.
Já og prófaðu spíssahreinsi.