Verðmunur á Diesel og Benzini

Langar þig til að segja eitthvað, en þú veist ekki hvar það á heima?! Segðu það hér!

Verðmunur á Diesel og Benzini

Postby elli » Tue 09. Dec 2008 12:42

Datt inn á frétt um verð á Diesel í þýskalandi.
Hér má sjá að verð á Diesel er lægra heldur en á Bensíni, því er því ekki svoleiðis farið hér.

Tiltekin bensínstöð í DE

Diesel 1.02 EUR
Bensín 1.06 EUR

Orkan IS:
Bensín 129,7 ISK
Diesel 156,7 ISK

hvað er málið 23% hærra verð á Diesel á íslandi

http://www.bild.de/BILD/news/leserrepor ... telle.html
Þeir eru reyndar að velta fyrir sér hvenær diesel-inn fari niður undur eina EUR þannig að fréttin kemur ekki þessum pósti við, nema til að sýna verðmuninn milli tegunda hér og í DE.

Image
Elli M1 fan
E32 750I '91 >

Ísland Bezt í Heimi ! [á ekki við lengur]
User avatar
elli
Rallýbílstjóri
 
Posts: 1498
Joined: Tue 28. Jan 2003 22:08
Location: Hrollkalda Ísland

Postby JonFreyr » Tue 09. Dec 2008 12:50

Diesel er reyndar ódýrara en bensínid hérna í DK.....kostar ekki nema 7,22 DKR á Jótlandi.
Volvo 945 Túúúúúrbó

Image
User avatar
JonFreyr
Formúlubílstjóri
 
Posts: 1783
Joined: Sun 11. Mar 2007 20:57
Location: Kaupmannahöfn

Postby elli » Tue 09. Dec 2008 13:05

JonFreyr wrote:Diesel er reyndar ódýrara en bensínid hérna í DK.....kostar ekki nema 7,22 DKR á Jótlandi.

Akkúrat hvað er málið með ónýta Ísland!
Elli M1 fan
E32 750I '91 >

Ísland Bezt í Heimi ! [á ekki við lengur]
User avatar
elli
Rallýbílstjóri
 
Posts: 1498
Joined: Tue 28. Jan 2003 22:08
Location: Hrollkalda Ísland

Postby IceDev » Tue 09. Dec 2008 13:34

þetta er líklegast vegna þess að þungaskattur var afnuminn af díselbifreiðum, þar af leiðandi borgum við aukaskatt af dísel eldsneyti

Annars þykir mér fáránlegt að þurfa að borga meira fyrir eldsneyti á bíla sem eyða minna og þar af leiðandi menga minna, ef eitthvað er ætti díselinn að kosta minna heldur en bensín

Bjúrókrasía dauðans
IceDev
Formúlubílstjóri
 
Posts: 3976
Joined: Sun 29. Feb 2004 03:40

Postby Djofullinn » Tue 09. Dec 2008 14:15

IceDev wrote:þetta er líklegast vegna þess að þungaskattur var afnuminn af díselbifreiðum, þar af leiðandi borgum við aukaskatt af dísel eldsneyti

Annars þykir mér fáránlegt að þurfa að borga meira fyrir eldsneyti á bíla sem eyða minna og þar af leiðandi menga minna, ef eitthvað er ætti díselinn að kosta minna heldur en bensín

Bjúrókrasía dauðans

Algjörlega sammála
Tony Montana - BBS LM CREW
E36 M3 Coupe Daytona Violet 18" BBS LM

http://www.e30.is
Djofullinn
Meðlimur
Meðlimur
 
Posts: 12187
Joined: Fri 30. Aug 2002 21:03
Location: Uppí rúmi í spandex

Postby DABBI SIG » Tue 09. Dec 2008 14:39

Það er olíuskattur eða eitthvað álíka innifalinn í verðinu á dísilolíunni.
Annars væri þetta sennilega ódýrara.
MMC L200 38" 2001
BMW 328 e46 *Loadaður* 18" ljúft....SOLD
Suzuki Vitara ´97 Vetrarbíter...SOLD
Image
User avatar
DABBI SIG
Go-kartbílstjóri
 
Posts: 377
Joined: Fri 27. Apr 2007 00:51
Location: tja...einhversstaðar að leika mér:D

Postby bebecar » Tue 09. Dec 2008 15:23

Maður á bágt með að skilja að eitthvað vit sé í að kaupa dísil heima - þó þeir eyði miklu minna. Þetta er svo mikill verðmunur!
Ingvar Örn || BMW R100RS 1994 || Renault Megane RS Turbo 2009 || Alfa Romeo Duetto 1967 Fast Road
User avatar
bebecar
Barnakerrubílstjóri
 
Posts: 10882
Joined: Tue 03. Sep 2002 12:54
Location: Reykjavík 101

Postby gunnar » Tue 09. Dec 2008 15:34

bebecar wrote:Maður á bágt með að skilja að eitthvað vit sé í að kaupa dísil heima - þó þeir eyði miklu minna. Þetta er svo mikill verðmunur!


Fyrir utan að dísil bílarnir eru töluvert dýrari í innkaupum.
Image
BMW E30 328i Coupe
User avatar
gunnar
Formúlubílstjóri
 
Posts: 11549
Joined: Tue 13. Jan 2004 23:15
Location: Reykjavík

Postby Einari » Tue 09. Dec 2008 17:09

[quote="IceDev"]þetta er líklegast vegna þess að þungaskattur var afnuminn af díselbifreiðum, þar af leiðandi borgum við aukaskatt af dísel eldsneyti

Annars þykir mér fáránlegt að þurfa að borga meira fyrir eldsneyti á bíla sem eyða minna og þar af leiðandi menga minna, ef eitthvað er ætti díselinn að kosta minna heldur en bensín

Bjúrókrasía dauðans[/quote]

Þungaskattur var ekki beint afnuminn af diesel bílum, hann var bara settur inní verðið á olíunni eins og hann var í verðinu á bensíninu. Vörubílar þurfa að borga þungaskatt aukalega með olíunni afþví að þeir þurfa að borga meira en venjulegur fólksbíll.
Síðan var komið með græna diesel olíu á vinnuvélar og þá bíla sem þurfa ekki að borga þungaskatt.
Þessi verðmunur er þessvegna ekki útaf þungaskattinum, heldur einhverju öðru, diesel líterinn var líka ódýrari en bensín hérna fyrst eftir að þungaskatturinn var settur inn í olíuverðið.
Einari
Kassabílstjóri
 
Posts: 176
Joined: Mon 06. Mar 2006 19:18
Location: Akureyri

Postby IceDev » Tue 09. Dec 2008 17:13

IceDev wrote:þetta er líklegast vegna þess að þungaskattur var afnuminn af díselbifreiðum, þar af leiðandi borgum við aukaskatt af dísel eldsneyti
Einari wrote:Þungaskattur var ekki beint afnuminn af diesel bílum, hann var bara settur inní verðið á olíunni eins og hann var í verðinu á bensíninu.


Það var það sem ég sagði

Plús að það er skiljanlegt fyrir vörubíla, sem vega mun meira heldur en almennur fólksbíll að borga þungaskatt vegna skemmda á malbiki

Græna dísilolían eru einungis fyrir ökutæki sem notuð eru við vinnu og skráð sem slík
IceDev
Formúlubílstjóri
 
Posts: 3976
Joined: Sun 29. Feb 2004 03:40

Postby BjarkiHS » Tue 09. Dec 2008 20:16

Verðið á grænu olíunni, er í raun það sama og á venjulegum díesel -þungaskattur
BjarkiHS
Getawaybílstjóri
 
Posts: 981
Joined: Thu 07. Sep 2006 22:08
Location: Ásbrú

Postby bebecar » Tue 09. Dec 2008 21:16

gunnar wrote:
bebecar wrote:Maður á bágt með að skilja að eitthvað vit sé í að kaupa dísil heima - þó þeir eyði miklu minna. Þetta er svo mikill verðmunur!


Fyrir utan að dísil bílarnir eru töluvert dýrari í innkaupum.


Já, frekar öfugsnúið að hafa þetta svona á skjön við það sem nágrannalöndin eru að gera.
Ingvar Örn || BMW R100RS 1994 || Renault Megane RS Turbo 2009 || Alfa Romeo Duetto 1967 Fast Road
User avatar
bebecar
Barnakerrubílstjóri
 
Posts: 10882
Joined: Tue 03. Sep 2002 12:54
Location: Reykjavík 101

Postby BMWaff » Tue 09. Dec 2008 21:28

Hef aldrei skilið þetta... Þeir vilja setja auka skatta á eyðslumikla bíla og fleira gáfulegt til að koma í veg fyrir mengun... En afhverju ýta þeir ekki undir að fólk kaupi diesel bíla? Afnemi þá bara eitthvað af þessum diesel sköttum eða eitthvað...
Núið:
BMW 730d '04
BMWaff
Rallýbílstjóri
 
Posts: 1121
Joined: Sun 24. Aug 2003 20:11
Location: Rvk

Postby sh4rk » Wed 10. Dec 2008 00:27

Sko þó svo að þungaskatturinn hafi verið afnuminn og settur inn í olíuverðið þá er disel olían of dýr og tala nú ekki um fyrir vöruflutningabílana sem þurfa ennþá held ég allveg örugglega að borga kílómetragjald sem er 13kr á ekinn km og mig minnir að literinn af disel hafi ekki kostað nema rúmlega 50kr pr/liter áður en hann var settur inní olíuverðið
Siggi
E23 735i
E32 740i 6 spd 8)
E38 740d
E32 735i Shadowline Seldur
E32 740i Seldur
E32 740i RIP
User avatar
sh4rk
Formúlubílstjóri
 
Posts: 2837
Joined: Sat 14. Sep 2002 18:05
Location: Reykjavík

Postby Svezel » Wed 10. Dec 2008 11:04

Ég sendi fyrirspurn á skeljungur.is og fékk þetta svar skömmu síðar.

Sæll Sveinbjörn

Verðbil milli bensíns og diesel olíu hefur verið að aukast. Í dag þá er innkaupsverð á diesel litra 50% hærra en á bensín litranum. Yfirleitt er það þannig að eftirspurn eftir bensíni er meiri á sumrin en á veturna. Eftirspurn eftir diesel olíu eykst m.v. bensínið á veturna og er það m.a. vegna þess að diesel olía eða olía sem er mjög skyld henni er notuð við húshitun. Þessar eftirspurnar sveiflur eru þannig í hámarki yfir háveturinn og hefur það eðlilega áhrif á verðið.

Einnig er það þannig að staða diesel bíla gagnvart bensín bílum hefur breyst í heiminum þannig að hlutfallslega eru þeir nú fleiri en áður. Stjórnvöld víða um heim hafa hagað skattlagningu sinni á eldsneyti þannig að gjöld á bensíni eru mun meiri per litra en á diesel olíu. Markmiðið með því er að gera diesel bílinn samkeppnisfærari miðað við bensín bílinn þar sem disel bílar eru taldir menga minna. Þannig að ef þú skoðar verð á bensíni og diesel olíu erlendis og berð það saman við verðið hér þá felst munurinn fyrst og fremst í mismunandi skattlagningu á bensíni og diesel.

Með kveðju,
Már Erlingsson
E36 M3 US | Jeep Grand Cherokee Limited V8
User avatar
Svezel
Formúlubílstjóri
 
Posts: 6870
Joined: Mon 02. Sep 2002 11:04
Location: á hjólinu

Next

Return to Off-Topic umræður

Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 17 guests