Er með 2 dekk á felgu 215/55R16
og svo 2 dekk, sömu stærðar, ekki á felgu.
Þegar ég stilli þeim upp þá er rosalegur munur á hæðinni.
Maður hefur heyrt að það geti verið nokkur munur á dekkjum í sömu stærð á milli framleiðenda.
Ég er að velta því fyrir mér hvort að þetta verði eðlilegt þegar dekkin verða komin á felguna og loft í þeim.
Þetta er undir iX bíl, þess vegna er ég að hugsa um þetta. Ef stærðin er ekki sú sama þá kemur eitthvað mjög vont hljóð.
Veit samt ekki hvort þessi litli munur hafi eitthvað að segja.
Hvað segja menn um þessar getgátur?


