Svezel wrote:Hvernig læsingu ertu að leita að og í hvernig bíl/drif/hásingu?
Ef þú ert að leita að loftlæsingu þá er þetta eflaust um 150þús + vinna en no-spin er svona helmingi ódýrara.
Síðan er hægt að fá lock-right læsingar sem virka nánast eins og no-spin. Maður setur þær inn í opið drif og læsir saman kóngulóar-gírunum sem gerir drifið þannig 100%læst. Þetta er að kosta svona 1/3 af loftlás og maður á að geta sett þetta í sjálfur, þarft ekkert að stilla þetta eða annað vesen en það eru ansi skiptar skoðanir um hvort þetta sé drasl eða ekki. Virðist alveg virka í létta bíla og bíla sem eru ekkert að drukkna í afli.
Færð læsingar hjá Bílabúð Benna, Artic trucks og fleiri stöðum hér heima eða pantar af netinu.
Hlynur___ wrote:Svezel wrote:Hvernig læsingu ertu að leita að og í hvernig bíl/drif/hásingu?
Ef þú ert að leita að loftlæsingu þá er þetta eflaust um 150þús + vinna en no-spin er svona helmingi ódýrara.
Síðan er hægt að fá lock-right læsingar sem virka nánast eins og no-spin. Maður setur þær inn í opið drif og læsir saman kóngulóar-gírunum sem gerir drifið þannig 100%læst. Þetta er að kosta svona 1/3 af loftlás og maður á að geta sett þetta í sjálfur, þarft ekkert að stilla þetta eða annað vesen en það eru ansi skiptar skoðanir um hvort þetta sé drasl eða ekki. Virðist alveg virka í létta bíla og bíla sem eru ekkert að drukkna í afli.
Færð læsingar hjá Bílabúð Benna, Artic trucks og fleiri stöðum hér heima eða pantar af netinu.
takk fyrir
ég er annars að leita mer af ódýrustu læsinguni sem er á markaðnum, helst notaða. og bara í afturdrifið ekki framdrifiðþ þetta er hilux 91
jeppakall wrote:myndi frekar fá mér no-spin! Það eru einu læsingarnar sem virka finnst mér allavega og ég hef prófað flest allar gerðir nema þetta lock-right sem ég hef heyrt misgóðar sögur um. Loftlæsingar eru bara að klikka of oft og verðið er![]()
Þú getur pottþétt fundið no-spinh nánast gefins á ebay eða á partasölu.

Lindemann wrote:ég væri til í að vita hvað menn vilja meina að sé að klikka í loftlæsingunum......... ég veit ekki betur en að þær virki mjög vel svo lengi sem loftþrýstingur í lögninni fellur ekki.


MR.BOOM wrote:Búinn að vera viðloðinn jeppamennsku bráðum í 30 ár hef prófað allar útfærslur af drifum allt frá opnum til harðsoðinna. Reynsla hefur sýnt mér að Nospin er eina sanna læsingin, virkar alltaf ,bilar minnst og bílar útbúnir henni drífa betur.
Users browsing this forum: No registered users and 43 guests