Brútus wrote:
KristoferK wrote:
Settu nokkra ísmola í tvö- eða þrefaldan poka, finndu þér eitthvað barefli og myldu klakann niður í litla mola. Sturtaðu þeim ofan í glas og helltu scotch'inu yfir. Þannig byrjaði ég að drekka viskí og þannig varð ég algjörlega húkked

En samt sem áður sko . .
Bragðið fer alltaf betur og betur í mig eftir því sem að ég fæ mér meira af þessu . . .
Ég var að grafa þessa flösku sko bara upp úr tösku . . hún var inni í bók sem að afi minn heitinn hafði átt . . engar blaðsíður heldur bara pláss fyrir viský

. . og þarna var hún . .eitt stykki flaska
En annars hefur það mikil áhrif á styrkleika bragðsins myndir þú segja að hafa þetta svona "on the rocks" . . ?
Ég mæli í alls ekki með því að setja klaka í viskí. Ice Cone drykkurinn er ágætur, allavega til að koma sér inní viskí, en þá líka aðallega til að drekka hann hratt... svona þegar maður er að flýta sér
Klaki kælir viskíið (sem þú villt almennt ekki), hann drepur ilminn af viskíinu og minnkar bragðið töluvert. Eins og ég segi; Ice Cone er ágætis djamm blanda, en klaki er bara fyrir bíómyndirnar.
Ef þú villt þynna örlítið út bragðið á meðan þú ert að byrja að drekka viskí þá er þumalputtaregla "sérfræðinganna" að taka lítið viskí glas, setja u.þ.b fylla u.þ.b þumalputta af viskí og fylla svo glasið með vatni.
Svo er svosem allt í lagi að benda á að sumir sérfræðingar vilja meina að viskí sé einfaldlega betra með vatni og að nokkrir dropar af hreinu vatni auka og bæta bragðið sem einkennir t.d. scotch.
Persónulega vil ég drekka það vatnslaust, en menn hafa auðvitað mismunandi skoðanir á þessu. Mæli með að þú prófir þig áfram.