zazou wrote:
Akkúrat ástæðan fyrir því að mig langar ekki að eiga bílinn, ég vil setjast niður í bíla, ekki vera á jeppa/ameríkanabíl. Þetta er bara mitt persónulega preference, Bæverjarnir gera þetta vel, það verður ekki tekið af þeim.
HEY, X5 er ekki ameríkanabíll þó spikfeitur verkamaður í Kentucky skrúfi hann saman.
_____________________
Varðandi þetta dæmi um vörubílstjórann þá hefur þessi bíll eflaust verið á bílasamning eða fjármögnunarleigu (mjög svipaður hlutur). Eins og flestir ykkar vita þá á fjármögnunarfyrirtækið bílinn en þú ert eingöngu umráðamaður. Ef þú borgar ekki þá er bíllinn hirtur af þér og í svona árferði er ekki eftir nokkru að bíða því það er ekki fyrirsjáanlegt að fjárhagsvandræði/greiðsluþrot bílstjórans muni líða hjá á næstunni. Því er það allra hagur að fjármögnunarfyrirtækið hirði bílinn sem fyrst og reyna að fá eitthvað upp í skuld sína. Þetta dæmi er ósanngjarnt en hvað ef fjármögnunarfyrirtækið hefði tapa þessum milljónum sem þarna munar, hefði það verið sanngjarnara? Báðir aðilar taka áhættu með því að gera upp samninginn á einhverjum fyrirfram gefnum forsendum
Nú hef ég engar áhyggjur af framtíð fjármögnunarfyrirtækja og þau geta öll farið á hausinn mín vegna. Ef sagan er sögð frá hinu sjónarhorninu þá eru fjármögnunarfyrirtækin að selja þessar bíldruslur með rosalegum afföllum, jafnvel 50% discount frá því verði sem gert var upp í.
EF ÞÚ TEKUR LÁN ÞÁ VERÐUR ÞÚ AÐ BORGA ÞAÐ TIL BAKA.
Ef að söluvirði bílsins erlendis er 14m... og þeir mátu hann á 5m, en lánið stóð í 9,6....
hefði ekki verið hægt að gera upp lánið í stað þess að maðurinn skuldi áfram 6 milljónir