Ég hef margoft velt því fyrir mér hversu margir á kraftinum keyra um á BMW daglega þangað sem þeir þurfa að fara og því hef ég ákveðið að henda fram þeirri spurningu.
ATH. Myndir eru nánast nauðsyn svo hægt sé að hafa gaman af þessum þráð
Hver er þinn daily driver??
Minn daily er BMW E30 325i Cabrio árg. '89 sem að flestir kannast nú við hérna inni, en hann keyri ég daglega fimm daga vikunnar og stundum oftar Kef-Rvk-Kef sem gerir 100km. á dag og er bíllinn nú komin í 203 þ.km.
Ég er búinn að setja myndavélina mína á alveg svakalega góðan stað þannig að ég get ekki sett inn mynd af bílnum grútskítugum eins og hann er í dag, þannig að þessi verður bara að duga












