Ég er á E46 sem var gjörsamlega að gera mig vitlausan í sumar og hann er ekki nema á 225/50 R16!
Hann var semsagt alveg dúndurfínn þegar ég keypti hann fyrir rúmu ári og síðan alveg snilld síðasta vetur. Síðan keypti ég ný dekk undir framendann á honum (Marshall aka Kumho) síðasta vor og hann fór að rása alveg eins og vitleysingur. Ég ætlaði hreinlega ekki að kaupa að dekkin væru málið og sannfærði sjálfan mig að það hlyti að vera tilviljun eða það hlyti þá allavega að skána við einhverja notkun á dekkjunum.
Það gerði það bara alls ekki ég fór meðal annars með hann í hjólastillingu til að athuga hvort það gæti verið eitthvað slíkt - hafði heyrt af bílum þar sem það hafði bara verið málið. Þeir leiðréttu einhverja smávegis skekkju en það skipti akkurat engu máli og hann hélt áfram að rása. Fiktaði mig einnig áfram með loftþrýstinginn en allt kom fyrir ekki.
Ég var síðan farinn að venjast þessu þegar leið á sumarið og passaði mig bara á öllum hjólförum og slíku því þar lét hann bara eins og vitleysingur (kræst, verð bara pirraður af tilhugsuninni svona eftir á!

). Fór síðan aftur á vetrardekkin núna um daginn (sem eru btw nákvæmlega sama stærð) og bíllinn er aftur eins og draumur þannig að þessi #$"%"#%#% Marshall dekk munu ALDREI rata aftur undir framendann á bílnum!
Semsagt - ef hjólastillingin nægir ekki og ef hann rásar jafnt til beggja hliða þá gæti lausnin legið í dekkjunum. Það er ekkert eðlilegt að þýskur fákur haldist ekki þokkalega á veginum þó hann sé á 17".