íbbi_ wrote:
pixlavandamálið flokkast ekki undir bilun i.m.o.. bilun jú en ekkert sem er ekki í þeim öllum,
þetta eru bara kveljur, þetta er mun flóknari bíll en flestir bílar í framleiðslu í dag, og 15ár síðan þetta kom fyrst,
þú getur alltaf átt von á að skipting fari í svona bíl, þeir eru allir mikið keyrðir í dag, og flestir mun meira keyrðir en þeir eiga að vera,
8cyl bílarnir eru mjög gjarnir á að leka olíu, bæði með ventlaloks og tímalokspakningum, sú seinni er BARA mikið vesen og rándýrt að eiga við,
stýrisdælu geturu átt von á að þurfa skipta um, þær leka mikið í þessum bílum og þar af leiðandi oft skemmdar,
ef það er ekki búið að fara yfir framhjólastellið lendir það líklegast á þér.. þar er slatti,
og svo framvegis og framvegis,
nú er ég ekki að "lasta" bílnum, þetta eru einhverjir mestu vagnar sem ég hef átt og verið á, en þetta eru gríðarstórir og miklir og flóknir bílar, og oftar en ekki enganvegin fyrir amatör að laga,
ég væri gjarnan til í að eiga svona bíl, en mæli samt ekki með rekstrinum, svona þar sem ég veit líka að þú ert ekki sama týpa af bíladellukarli og ég t.d,
Got that right. Ef ég væri alvöru dellukarl hefði ég líklegast aldrei spurt, bara keypt.