ValliFudd wrote:Jæja, nú er komið að því!
Einhver með?
Fyrsti dagur eftir viku..
Sælir drengir - ég vill endilega að sem flestir sem gætu haft áhuga á að starfa með okkur mæti á kynninguna þó að þeir séu kannski ekki 100% á því að þetta sé eitthvað fyrir þá... þetta er auðvitað bara kynning á starfinu fyrir áhugasama en ekki innritun í nýliðastarfið.
Það finna sér allir eitthvað sem þeir hafa áhuga á, hvort sem það er ísklifur eða olíumaurast í bílaflokk (við eigum bara Toyota og Ford - sorry

)
Ef að einhver hefur áhuga á því að starfa eða kynnast þessu en kemst ekki á fundinn á miðvikudaginn í næstu viku (3. sept) þá eru upplýsingar um hvernig á að komast í samband við okkur nýliðaþjálfarana á
nýliðasíðunni.
Kveðja, Guðni Þór nýliðaþjálfari
P.S. ValliFudd: Ert þú nokkuð skeggjaði maðurinn sem lánaðir mér gult vesti á kraftsleikdeginum um daginn?