bimmer wrote:
gstuning wrote:
Sorglegt.
Að eyða svona miklum tíma og ekki velja rétta tegund af compressor húsi eða afgas húsi, eitthvað sem hefði ekki kostað NEITT aukalega
Fyrir okkur sem erum ekki á kafi í turbo pælingum - hvað er rangt
við valið hjá honum og hvað hefði hann átt að fá sér í staðinn?
Split pulse. Er þegar púlsarnir af lofti komandi úr vélinni eru aðskildir frá öðrum helmingum af vélinni
Það eru 120gráður á milli þess er loft kemur útúr einum af stimplum vélarinnar, þegar maður er með lélegt manifold þá rekast púlsarnir á hvorn annan inní greininni, þetta gerir að verkum að orkan í púlsinum eyðist við það að rekast á annan púls. Með góðri aðskildri grein þá eru 240gráður á milli þess að púlsar komi út á 6cyl vél(180° á 4cyl)
Tilgangurinn er að nota massann í hverjum púlsi til að koma og rekast á túrbínu spaðann, liggur við kýla þá áfram, ekki bara nota þrýstings fallið yfir túrbínu spaðann til að mynda loftflæði til að snúa þeim af stað.
Þetta gerir það að verkum að ef maður er með túrbínu setup sem gefur boost við segjum 2700rpm og skiptir yfir í stærri túrbínu til að ná fram hærri hámarks hestöflum þá myndast oftast lag. því að massinn í spöðunum er meiri og því efiðara að snúa, einnig verður þrýstingsfallið að vera meira til að ná þeim af stað. Með þessari tækni þá væri hægt að fá boostið enn inná 2700rpm OG meira viðbragð í miðri gjöf.
Þessi mynd var bara til að sýna aðskilnaðinn á grein og lausn við wastegate vandamál, oftast nota menn samt bara eitt sem er tengt á báða helminga, enda lokað þangað nema þegar boost takmarkinun er náð og þá lítið tap.
Compressor húsið.
Nýjasta tækni er Anti Surge housing
Þið sjáið að þarna utan um spaðann er smá ál hringur og fyrir utan hann er stórt op og svo annar ál hringur þar sem að hosa eða sía færi.
Þegar menn eru að fara blása töluvert þá þarf oft stóra compressora, þá getur myndast compressor surge, það er markið á vinstri línunni hérna
Þetta er flæði markið þar sem að compressor hjólið er ekki að snúast nógu hratt til að mynda boost. þannig að loft í raun fer í gegnum hjólið og hoppar svo tilbaka út aftur
Þetta hús þarna hjálpar svo það gerist ekki það einnig breikkar compressor mapið, sem þýðir hreinlega sama spool, meira max flæði án þess að tapa neinu útaf laggi eða líku
_________________
With great challenges comes great engineering.
Gunnar Reynisson
