ömmudriver wrote:Jæja..................................................................................
Ég fékk alveg hreint hrikalega óspennandi símtal frá B&L í dag.
Bíllinn var settur í samband við tölvu um daginn það kom ekkert útúr því og fengu þeir hjá B&L leyfi frá mér til þess að athuga tímann og ventlastillinguna. Já ok þeir gerðu það og var tíminn réttur og einnig var ventlastillingin nánast 100%. Því næst ákváðu þeir að þjöppumæla mótorinn og er þjappan ekki nógu há.
Hr. Trausti hjá B&L sagði mér því að líklegast væru höfuð- og/ eða stangarlegurnar orðnar slappar.
Eftir að ég heyrði upphæðina á reikningnum þá sagði ég Herr Trausta að ég myndi sækja bílinn þegar að ég verð búinn að ræna eitthvern banka.
Arnar...
???






