Sælir piltar/stúlkur.
Ég er með 735 e38 bíl og var að skipta um vatnskassa í TB um daginn.
Núna þegar ég set bílinn í gang kemur ennþá Watnhvasser fullen eða e-ð .. og svo kemur af og til kulhwarest prufen eða e-ð álíka.
Þar sem ég er ekki sá sleipasti í þýskunni og veit lítið um þetta þá var ég að velta fyrir mér hvað væri í gangi.
Þetta kom líka áður en ég skipti um vatnskassa og þá fór hann að hita sig aðeins þannig ég skipti um hann og þá hefur hitamælirinn alveg verið stilltur (var gat á gamla kassanum). Ég er búinn að opna kassann og það er alveg nóg á honum. en þetta kulhwarest dæmi kemur bara þegar hann er kaldur, ef ég er búinn að keyra slatta og drep á honum og kveikji svo eftir smá stund kemur þetta ekki. Svona að meðal gáfuðum manni að vera þá ætti þetta að vera e-ð um vatnskassann og kælivökva.
Væri fint að fá að vita hvað þetta sé.
