gstuning wrote:
bebecar wrote:
Kannski mætti breyta off topicinu í off topic um bíla.
Hmm, held það gæti verið góð hugmynd.
Halda B2 og youtube bulli alveg af kraftinum bara.
nema bíla dóti..
Þótt ég sé algerlega sammála ykkur með bullið á mörgum þráðum hérna, er ég ekki sammála því að breyta off topic í eingöngu off topic um bíla. Ég nota off topic oft í fyrirspurnir um hluti sem ég virðist ekki geta fundið með góðu móti á google eða leit.is. Einnig leita ég oft ráða eða álita á hinum ýmsu hlutum, t.d. með tölvuvesen og fæ alltaf eitthvað feedback, þótt það sé ekki alltaf gagnlegt, en er það í mörgum tilvikum.
Ég veit að það er alveg hægt að fara á vaktin.is eða barnaland til að spyrja um hitt og þetta, en hér er góður félagsskapur sem hægt er að stóla á að svari og geti gefið einhver ráð, eða bent manni í rétta átt.
Mér finnst einnig ekkert að því að vera með sérstaka þræði þar sem hægt er að pósta myndum og myndböndum og þessháttar, og þá er því haldið í þeim þráðum. Þeir sem fíla ekki þannig eru þá ekkert að lesa þá þræði.
Um að gera að halda þessu spjalli sem nytsamlegustu fyrir alla. Það þýðir að menn þurfa að ritskoða sjálfa sig í hvert sinn sem þeir pósta. Það er eins og sumir séu ekki með þessa síu sem flestir eru með, þar sem flestir skrifa eitthvað og hugsa svo: "Nei, ég ætla ekki að pósta þessu rugli". Þá hugsa sumir ekkert út í hvað þeir setja hérna niður og er greinilega alveg sama um sinn orðstír hérna.
Mér er sko ekki sama um minn orðstír hér, ég nota mitt nafn hérna á spjallborðinu og vill ekki að fólk dæmi mig sem vitleysing af einhverju sem ég skrifa hér. Þess vegna ritskoða ég mig eiginlega undantekningarlaust áður en ég pósta einhverju hérna. Ég er ekki neinn fróðleiksbrunnur þegar kemur að bílum, en stundum vill ég reyna að leggja mitt af mörkum hér eins og svo margir. En áður en ég pósta einhverju, þá vill ég vera viss um að vera ekki hankaður á því að það sé vitlaust. Þess vegna googla ég og fer á Wikipedia o.s.frv. til reyna að vera handviss um að það sem ég er að pósta hér sé rétt.

_________________
BMW E39 523i '99 M Parallels "seldur"
VW Passat '98 "seldur"
VW Golf GTI '98 "seldur"
BMW E30 320i M-tech I '86 "dáinn"
