P.S. ég er á besserwisserkasti.

Langar þig til að segja eitthvað, en þú veist ekki hvar það á heima?! Segðu það hér!

Postby saemi » Fri 09. May 2008 20:46

saemi wrote:
Í fyrsta lagi þá er fyrsta innleggið í þessum þræði sem þú segist ekki hafa sett upp, EFTIR ÞIG. Hvernig getur einhver annar en þú þá hafa byrjað hann???



P.S., E55FFFan, ég held þú sért að misskilja hvaða þráð um ræðir sem ég nefndi í rælni. Ég var að vísa til bullþráðs um einhvern óheppinn einstakling í gulum galla, ekki eitthvað sem var sett inn á þínu nafni af öðrum aðila. Sá þráður er enn inni á spjallinu (breyttur af stjórnanda (ekki mér ) ).
Sæmi

E24 645csi, E23 745i E28 M5, E34 525ix, 518g, 525tds, M5T, E53 4.6is,
User avatar
saemi
Meðlimur
Meðlimur
 
Posts: 10602
Joined: Sun 01. Sep 2002 20:44
Location: Reykjavik

Postby E55FFFan » Fri 09. May 2008 20:48

Jss wrote:
Gunni wrote:
fart wrote:Held að allir geti bætt sig, sumir smá, aðrir töluvert... Enn aðrir eiga bara að vera úti.


Það er mikið til í þessu hjá þér Sveinn.
Það eru nokkrir sem eru bara gjörsamlega úti á túni hérna. Það þarf ekki
annað en að horfa bara á þennan þráð sem fjallar um að menn eigi að fara
að taka til hjá sér.

Við höfum verið að reyna að senda mönnum pm og benda þeim á hvað mætti
betur fara til þess að spjallborðið detti ekki niður á lægra plan. Það virðist
ekki vera að ganga upp þannig að það er spurning hvað skal til bragðs taka.

Mín skoðun er sú að það eigi ekki að leyfa 2-3 aðilum að skemma annars
mjög gott spjallborð sem hefur gengið smurt í mörg ár. Það þarf auðvitað
bara að sparka þeim mönnum héðan út sem hafa sig hvað mest frammi í
að skemma fyrir okkur hinum.

Er það ekki bara lausnin ?


Ég er meira en mikið sammála þessu, spjallið hefur farið hríðversnandi og margt orðið nánast ólesandi. Þá er ég sammála mörgum hérna að vissir aðilar eru einfaldlega ekki að gera góði hluti á spjallinu og þykir mér það miður þar sem ég stundaði spjallið mikið á sínum tíma. Ég hætti að skoða spjallið um tíma nema þá kannski bara til að fylgjast með þróuninni á bílunum hjá Svenna "fart" og Þórði "bimmer" ásamt öðrum spennandi bílum.

Það þarf að bæta úr þessu ef spjallið á ekki að festast á þessu stigi.

PS. Þar sem menn voru eitthvað að væla yfir icedev þá verð ég nú bara að segja að mitt álit er að það væl eigi engan rétt á sér. Og ennþá síður þetta skot E55FFFan á Sæma sem er nú ekki kallaður "Bangsapabbi" að ástæðulausu.




tímarnir breytast og fólkið með, þetta er ekkert nema árás.. þetta er bara skondið :)
E55FFFan
Getawaybílstjóri
 
Posts: 559
Joined: Tue 09. Oct 2007 20:23
Location: Halfpriceland

Postby BirkirB » Fri 09. May 2008 20:52

Ég hef einmitt séð á nokkrum spjallborðum að þá fá notendur svona "Warnings" fyrir neðan username-ið, eða eru bannaðir.
Ég hef séð fólk vera bannað fyrir minna en margt sem gerist hér inná...

Það eru margir moddar hérna sem fylgjast með sem ættu að geta bannað notendur án þess að setja upp könnun eða slíkt...
Bönnin gætu líka verið mislöng...
E39M5
I4M50
User avatar
BirkirB
Formúlubílstjóri
 
Posts: 1838
Joined: Fri 20. Jul 2007 13:51
Location: Rkv

Postby Jss » Fri 09. May 2008 20:53

E55FFFan wrote:tímarnir breytast og fólkið með, þetta er ekkert nema árás.. þetta er bara fyndið :)


Ef þú telur svar mitt árás á þig þá hlýtur þú að vera að lesa annað en ég skrifaði, ég minntist nú bara á að mér þætti skot þitt á Sæma ekki eiga rétt á sér, það er mín skoðun á því þar sem ég tel mig þekkja vel til Sæma sem og fleiri aðila hér á spjallinu og hef ekkert annað en gott um Sæma að segja. Ég þekki þig ekkert og get því varla verið eitthvað á móti þér, var aðeins að tjá mig um skot þitt á Sæma varðandi bílskúrinn hans.

Sé engan veginn hvernig mitt svar getur talist árás á þig.
Jóhann
E36 BMW M3 '96 S50B32 - SELDUR
E36 BMW 328iA '95 (Articsilber metallic) - SELDUR
User avatar
Jss
Formúlubílstjóri
 
Posts: 4811
Joined: Wed 29. Jan 2003 22:16
Location: Hafnarfjörður

Postby fart » Fri 09. May 2008 20:53

Timarnir breytast á greinilega ekki alltaf, því að mér sýnist einhver hópur hérna á spjallinu vilja halda því á því háa plani sem hefur verið undanfarin 4-5ár.

Call us old-school en það er kjarninn sem heldur hlutunum gangandi, ekki hot-shots.
Last edited by fart on Fri 09. May 2008 21:10, edited 1 time in total.
Image
E36 M3GTtt
User avatar
fart
Formúlubílstjóri
 
Posts: 15742
Joined: Mon 21. Jul 2003 20:26
Location: Luxembourg

Postby Jss » Fri 09. May 2008 20:55

fart wrote:Timarnir breytast á greinilega ekki alltaf við, því að mér sýnist einhver hópur hérna á spjallinu vilja halda því á því háa plani sem hefur verið undanfarin 4-5ár.

Call us old-school en það er kjarninn sem heldur hlutunum gangandi, ekki hot-shots.


Góður punktur... Þótt tímarnir breytist þá þarf það ekki að þýða að spjallið þurfi að breytast í einhvern hrærigraut sem stofnendur þess sem og eldri meðlimir vilja augljóslega ekki ef eitthvað er að marka þá sem hafa tjáð sig á þessum þræði.
Jóhann
E36 BMW M3 '96 S50B32 - SELDUR
E36 BMW 328iA '95 (Articsilber metallic) - SELDUR
User avatar
Jss
Formúlubílstjóri
 
Posts: 4811
Joined: Wed 29. Jan 2003 22:16
Location: Hafnarfjörður

Postby E55FFFan » Fri 09. May 2008 20:56

Jss wrote:
E55FFFan wrote:tímarnir breytast og fólkið með, þetta er ekkert nema árás.. þetta er bara fyndið :)


Ef þú telur svar mitt árás á þig þá hlýtur þú að vera að lesa annað en ég skrifaði, ég minntist nú bara á að mér þætti skot þitt á Sæma ekki eiga rétt á sér, það er mín skoðun á því þar sem ég tel mig þekkja vel til Sæma sem og fleiri aðila hér á spjallinu og hef ekkert annað en gott um Sæma að segja. Ég þekki þig ekkert og get því varla verið eitthvað á móti þér, var aðeins að tjá mig um skot þitt á Sæma varðandi bílskúrinn hans.

Sé engan veginn hvernig mitt svar getur talist árás á þig.



var að tala um að sæmi hafi skotið á mig..


stöndum frekar saman við (BMW) eigendur og hættum að skíta á hvorn annan
E55FFFan
Getawaybílstjóri
 
Posts: 559
Joined: Tue 09. Oct 2007 20:23
Location: Halfpriceland

Postby saemi » Fri 09. May 2008 21:00

E55FFFan wrote:það var kærastan mín sem setti upp eitthvern bull þráð þegar að ég var ekki nærri,

einmitt, ég hef ekkert á móti þer persónulega, 5000 kr fyrir knastás í lagi er nátturulega bara bull verð! ég hef aldrei haft neitt á móti þer og hef alltaf gaman að lesa greinar eftir þig, og flottir bílar sem þú átt og allt það

eeen! ég svara þræðinum þínum, kem með mitt álit á attitude vandamáli. þá allt í einu er ég bara orðin stórt vandamál allt í einu hérna inni á spjallinu, það hefur aldrei neinn pm-að mig eða gefið í skyn að ég se eitthvað vandamál hérna nema þú, afhverju að grafa þetta liðna vandamál upp? er það kannski útaf því að ég er ekki meðlimur og er ekki búin pósta nema 160 póstum hérna inni á spjallinu?? þetta er ekkert annað en árás, !

ég er alveg jafn mikil hneta og margir hér inn á 8)


Ég held þú hafir stokkið upp á nef þér því þú greinilega hélst að ég væri að vísa í annan þráð en ég var. Sá var bara bull og vitleysa, ekki særandi eins og þann sem þú ert að vísa í. Mér hefði aldrei dottið til hugar að fara að vísa í hann, það væri ekki fallega gert.

Það sem þú gerðir var ekki bara að svara þræðinum mínum, þú varst með persónulegt skot á mig sem kom ekkert við því sem við vorum að tala um. Það er vegna þess sem ég spyr hvort þú eigir við vandamál að stríða. Maður fer ekki að blanda svona hlutum inn í umræðu eins og þessa.

Það er ekki þannig að menn fái pm á sig og viðvaranir í gríð og erg. Menn fá ekki svoleiðis fyrir bull komment, heldur einungis þegar þarf að taka út ummæli sem fara út fyrir velsæmismörk. Þessvegna halda mestu bullararnir hérna kannski að það sé allt í lagi það sem þeir eru að gera, því þeir hafa ekki fengið pm. VIÐ SENDUM EKKI PM á þá sem við erum að kvarta yfir. Bara ef það þarf að taka út texta sem viðkomandi hefur sett inn.

Það er ekkert verið að taka þig fyrir vegna þess að þú sért "aðeins með 160 innlegg" og ekki skráður meðlimur. Það hefur ekkert með málið að gera. Málið var bara að þú varst rangur maður á röngum stað. Þú ert sá sem ert með nýjasta bullið, ásamt brútusi og maxel og þess vegna er verið að tala um ykkur. Þið eruð heitustu bullararnir en það er fullt af öðrum líka (sumir farnir).


E55FFFan wrote:var að tala um að sæmi hafi skotið á mig..


Ég veit ekki til þess að ég hafi nokkuð skotið á þig???
Sæmi

E24 645csi, E23 745i E28 M5, E34 525ix, 518g, 525tds, M5T, E53 4.6is,
User avatar
saemi
Meðlimur
Meðlimur
 
Posts: 10602
Joined: Sun 01. Sep 2002 20:44
Location: Reykjavik

Postby maxel » Fri 09. May 2008 22:35

Ég heeeld ég skilji þig Sæmi hvernig þú vilt hafa þetta spjall...

Þú vilt hafa innlegg þannig þau séu usefull, eða allir/flestir geti haft notað þeim, villt ekki alltaf sömu spurningarnar, eða allavega leita fyrst...

Við spurningum ætti maður að hemja sig í að reyna svara staðreyndum eða benda á eitthvað eða einhvern sem gæti vitað svarið.
Ekki.. "uu æi leiðindavesen hjá þér, vonandi reddaru þessu"

Bullþræðir (aka maxel þræðir) eins og "leeeeiðist"-"mér leiðist í skólanuuuum......" eða eitthva svona kjaftæði... fer í taugarnar á flestum..

En afhverju eruði þá með off-topic dálk? Af hverju ekki bara "aðrar umræður" og þá mætti ekki allt flakka, td ekki alltaf að vera pósta einhverju B2 stuffi osfrv..

Líka þeir sem viljandi nota ekki google til að fá svar til baka, eins og einhver spyr hvað sé bilað, svarið er kannski donkið er losnað af gengjunni, þá sér maður alltaf "hvað er donk?" í staðinn fyrir að googla og fá instant svar...

Svo finnst mér hundömurlegt að "þeir stóru" eins og td einn sem hefur farið mest í taugarnar á mér undan farið, gunnigst, komast upp með allt, ekki að beina spjótum beint að gunna heldur að mörgum öðrum, þeir fá að litilsvirða og hrauna yfir eins marga og þeir vilja og aldrei nokkurntíman sagt orð...
Td þetta, beint quote...

gstuning wrote:
maxel wrote:
arnibjorn wrote:
maxel wrote:
arnibjorn wrote:Ekki hafa stefnuljós segi ég..

En af hverju býrðu ekki til þráð um bílinn í bílar meðlima? :)


:squint: Top secret :whistle:


Lame :whistle: :wink:

Nii, projectið mitt, þarf ekkert að deila því. Fyrsta verkefnið mitt líka, veit það er ekkert uber vel gert, frekar unusual... = leiðinda comment

Allavega, ekkert langt í hann, þannig hann sést someday.


Þetta sýnir því miður ákveðið þroskasti hjá þér að geta ekki tekið á móti neikvæðum commentum,
Stundum er þess virði eins og ég sagði við Stebbtronic að búa til bílar meðlima þráð og hver veit enn einhver gæti verið að pósta linkum þér til aðstoðar?


Semsagt vegna þess að mér langar ekki til að gera þráð um bílinn minn, útaf mörgum ástæðum, þar á meðal að ég veit ég fæ mörg leiðinda comment, þá er ég á lágu þroskastigi...
Ef ég hefði skrifað þetta orðrétt hefði ég fengið þvílík svör til baka.

Þessi svarskylda í bílar meðlima og fleira "flottur bíll 8)" og svo framvegis er ónauðsynleg, get lítið sagt sjálfur... enda nálægt 2000inlleggjum á stuttum tíma...
Sama gildir um söluþræði, ég setti einhvern tíman útá verðið á einhverri M20 vél og ég var jarðaður, ég hef ófáum sinnum séð auglýsingar skemmdar hérna með leiðindum frá öðrum "big shots", leyfið auglýsingunni bara að vera , ef verðið er of hátt þá er það seljandans mál...

Ég get endalaust blaðrar um þetta....Image
maxel
Formúlubílstjóri
 
Posts: 5844
Joined: Thu 01. Mar 2007 18:45

Postby Vargur » Fri 09. May 2008 22:49

saemi wrote:Þeir eru af þessarri bull-kynslóð sem sprengir spjallið með allskonar innleggjum sem betur ættu heima ó-póstuð. Yngri meðlimirnir eru vanir þessu umhverfi þar sem allt er látið flakka á msn-inu, tölvupóstum með hinu og þessu á youtube og bla bla. Þið eruð kannski vanir þessu í ykkar lífi, en þeir sem eru aðeins eldri og þroskaðri hér inni eru ekki í þessum pakka ykkar. Það er hér fullt af fólki, sennilega meirihlutinn, sem les 95% og póstar 5%. Þannig eru spjallborð sem fullorðið fólk stundar.

Ef þið bullarar viljið vera í þeim gír, vinsamlegast farið þá á önnur spjallborð þar sem þetta er viðhaft og viðgengst þar.


Bull kynslóðin er orðin mikið vandamál á góðum og rótgrónum netsamfélögum, því miður veldur þessi þróun því að eldri eða þroskaðri notendur hreinlega gefast upp á að lesa og pósta á spjallsíður eins og þessa.
Það er gríðarmikil vinna að halda úti svona síðu og erfitt að stýra umræðunum í þann faglega og fræðandi veg sem krafturinn var á í upphafi þekktur fyrir en ef menn leggjast á eitt ætti ekki að vera stórmál að komast fyrir þetta bull sem er í gangi enda er það mun minna hér en á mörgum öðrum síðum.
Ég held að stjórnendur þurfi að vera duglegir við að kæfa bullið strax í fæðingu og kenna nýjum notendum strax góða netsiði og að það sé ekki einhver sjálfsagður réttur að geta bullað hverju sem er hér inn.
Tommi camaro fanclub member no. 03
User avatar
Vargur
Getawaybílstjóri
 
Posts: 600
Joined: Thu 20. Feb 2003 14:56
Location: Í aftursæti lögreglubíls

Postby zazou » Fri 09. May 2008 23:00

maxel wrote:...En afhverju eruði þá með off-topic dálk? Af hverju ekki bara "aðrar umræður" og þá mætti ekki allt flakka, td ekki alltaf að vera pósta einhverju B2 stuffi osfrv..

Það ber að umgangast Off topic af skynsemi. Þetta er ekki ruslakista fyrir innihaldslaust blogg. Jafnvel finnst mér þræðir um non-BMW bíla meðlima borderline en það er önnur saga.

Annars tel ég mig líka til hins tiltölulega þögla minnihluta. Þarfur þráður hjá þér Sæmi, það er nauðsynlegt að útkljá svona mál in the open. Það er ekki eins og maður hafi séð slatta af n00bum bæta sitt ráð eftir að hafa fengið til þess að gera góðlátlega ofanígjöf sem þessa.

Spurning hvort B&L vilji sponsora verðlaun á næstu árshátíð: heitasti n00binn (sem hefur bætt sitt ráð) :lol:
Brynjar
Alfa Romeo 159

Gamalt:
Jaguar XJ8
Daimler Double Six
Jaguar XJ12 Sovereign

Vísitölubílar eru SATANS
User avatar
zazou
Formúlubílstjóri
 
Posts: 2610
Joined: Sat 01. Nov 2003 13:43
Location: London

Postby Svezel » Sat 10. May 2008 00:01

Þsð er meira en bara annríki og breytt áhugasvið sem veldur því að ég er farinn að pósta minna og mæta á færri samkomur....

Allt að fyllast af aulum og vitleysingum hér eins og annars staðar á internetinu, Gæti trúað að ég fari alveg að hætta að pósta og lesa hérna ef það verður ekki mikil breyting fljótlega

....sammála þér Sæmi....
E36 M3 US | Jeep Grand Cherokee Limited V8
User avatar
Svezel
Formúlubílstjóri
 
Posts: 6870
Joined: Mon 02. Sep 2002 11:04
Location: á hjólinu

Postby emilth » Sat 10. May 2008 03:47

ég tel mig nú vera til hins mjöööög þögla hluta kraftsins, búinn að vera skráður hér í bráðum 3 ár minnir mig, og ekki margt sagt. En það líður varla sá dagur sem maður skoðar ekki kraftinn og tékkar hvað er að gerast. Og núna uppá síðkastið hefur krafturinn skítfallið útaf endalausu bulli. Ég ætla ekki að nefna nein nöfn, hvort sem það eru nýjir meðlimir eða gamlir. Off topic þráður eða ekki, það þarf að hafa smá skynsemi í póstum inná spjallborð.

Ég hætti að skoða live2cruize af því að það voru bara endalaus leiðindi og vesen þar. Kannski er það búið að batna, en ég hef ekkert fyrir því að athuga það af því að ég nenni ekki að fara að skoða endalaust bull aftur. Krafturinn er spjallborð sem ég hef leitað til, af því að ég á BMW og hef áhuga á þeim og auðvitað af því að það eru margar skemmtilegar umræður hérna. Ég hef til dæmis keypt alla mína bíla í gegnum til sölu þráðinn, keypti minn fyrsta bmw af gerðinni E32 730i af maggab hérna og hef líka keypt sjálfskiptingu af honum, svo um daginn fékk ég mér 316i af Hróa hérna, og hef stundað ýmis minni viðskipti við hann, og svo hefur aldrei verið neitt vesen fyrir mig að fá hjálp frá kraftsmönnum. Hef nú hringt í þá nokkra, menn sem ég þekki ekki neitt, og þeir þekkja mig ekki, en samt alltaf fengið frábær og vel nýtileg svör, þar er sæmi með talinn :wink:

Sæmi hefur 100% ,og rúmlega það, rétt fyrir sér með þessum þræði, og ég vona að einhverjir taki það til sín sem hann segir. Ég segi bara.. Fáum kraftinn eins og hann var! :D
BMW 730i E32 1991
BMW 316i E36 1992 - Seldur

http://flickr.com/photos/emilth
emilth
Meðlimur
Meðlimur
 
Posts: 209
Joined: Wed 22. Jun 2005 23:19

Postby bimmer » Sat 10. May 2008 05:21

Sæmi er náttúrulega óþolandi besserwisser ( :lol: ) EN.....

ég er algjörlega sammála honum í þessu máli.

Það eru komnir á það nokkrir ungir og/eða óþroskaðir kappar sem eru að
draga niður gæðin á þessu spjalli.

Held að þessir aðilar ættu að hemja sig aðins við að pósta um tíma og
fylgjast meira með í smá tíma - sjá hvernig þeir sem eru búnir að vera
hér í langan tíma hegða sér og læra af því.

Nú ef menn geta ekki gert þetta - geta ekki hamið sig og hegðað sér
almennilega þá þurfa moddar að hugsa alvarlega um að banna þessa
aðila.

Krafturinn hefur verið í sér gæðaflokki miðað við önnur spjöll, amk.
er það mín reynsla frá því að ég byrjaði að stunda hann. Væri fúlt
ef að það myndi breytast til framtíðar.
Þórður
'99 M5 SC // '89 M3 S85 // '04 Patrol GR
Image
Alpina wrote:S85 er vondur mótor þó að hann sé kraftmikill...
User avatar
bimmer
Formúlubílstjóri
 
Posts: 15952
Joined: Sun 02. Nov 2003 21:17
Location: Reykjavík

Postby Brútus » Sat 10. May 2008 05:25

emilth wrote:ég tel mig nú vera til hins mjöööög þögla hluta kraftsins, búinn að vera skráður hér í bráðum 3 ár minnir mig, og ekki margt sagt. En það líður varla sá dagur sem maður skoðar ekki kraftinn og tékkar hvað er að gerast. Og núna uppá síðkastið hefur krafturinn skítfallið útaf endalausu bulli. Ég ætla ekki að nefna nein nöfn, hvort sem það eru nýjir meðlimir eða gamlir. Off topic þráður eða ekki, það þarf að hafa smá skynsemi í póstum inná spjallborð.

Ég hætti að skoða live2cruize af því að það voru bara endalaus leiðindi og vesen þar. Kannski er það búið að batna, en ég hef ekkert fyrir því að athuga það af því að ég nenni ekki að fara að skoða endalaust bull aftur. Krafturinn er spjallborð sem ég hef leitað til, af því að ég á BMW og hef áhuga á þeim og auðvitað af því að það eru margar skemmtilegar umræður hérna. Ég hef til dæmis keypt alla mína bíla í gegnum til sölu þráðinn, keypti minn fyrsta bmw af gerðinni E32 730i af maggab hérna og hef líka keypt sjálfskiptingu af honum, svo um daginn fékk ég mér 316i af Hróa hérna, og hef stundað ýmis minni viðskipti við hann, og svo hefur aldrei verið neitt vesen fyrir mig að fá hjálp frá kraftsmönnum. Hef nú hringt í þá nokkra, menn sem ég þekki ekki neitt, og þeir þekkja mig ekki, en samt alltaf fengið frábær og vel nýtileg svör, þar er sæmi með talinn :wink:

Sæmi hefur 100% ,og rúmlega það, rétt fyrir sér með þessum þræði, og ég vona að einhverjir taki það til sín sem hann segir. Ég segi bara.. Fáum kraftinn eins og hann var! :D


Þetta fannst mér svo vel skrifaður texti og rökstuddur að ég ætla að taka mig á í bullinu fyrir þig og þá sem að hugsa eins og þú. Að krafturinn geti verið verkfæri fyrir áhugamenn um bmw það er held ég svona smá hugmyndin með honum einmitt. Leita svara og miðla upplýsingum sem byggðar eru á persónulegri reynslu og þekkingu. Kraftinn ætti að vera hægt að nota sem verkfæri ef að það er eitthvað að bílnum þínum eða ef að þú villt bæta einhverju við hann sem er ekki til staðar.

Ef að þú ert með verkfærakassa með verkfærum sem að eru á kafi í rusli og óþarfa sem að jafnvel skemmir verkfærin þá gerir það þér erfiðara fyrir og öllum þeim sem að nota kassan, gramsa í ruslinu og finna eitthvað nytsamlegt og henda þeim verfærum sem eru ónothæf.
-Fannst þessi texti hjá þér taka kraftinn og lyfta honum á hærra plan.
User avatar
Brútus
Getawaybílstjóri
 
Posts: 930
Joined: Sat 25. Aug 2007 02:56

PreviousNext

Return to Off-Topic umræður

Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 74 guests