
IceDev wrote:Hah, ég vissi nú varla að ég yrði tekinn á teppið af sumum fyrir komment mín nýlega.
Það er svosem rétt, ég á Það til að vera hörkusúr stundum, sérstaklega undanfarið. Nokkrir af þessum póstum hefði ég átt að taka "skrifa þetta upp og pósta svo ekki"
Ég veit nú ekki hvað ég gerði E555fan en með Brútus þá var ég einungis að benda á að það þykir sjaldan góð ferstikla að hranna saman orðum án nokkurskonar hrynjanda eða þá stuðlum. Ég hefði nú reyndar getað fyrirgefið stuðlavandamálið
Ég er hinsvegar sammála Sæma, þetta spjall hefur farið frekar mikið niður á við og er það völdum einstaklingum að þakka.
Ég ætla nú ekki að nafngreina þá enda vita allir nema þessir einstaklingar sjálfir hverjir þeir eru
Ég skal hinsvegar vanda svör mín betur og deila súrlegheitum mínum yfir lengri tíma
Þórir wrote:Sælir.
Ég held að ég tilheyri einmitt það sem er kallað hér að ofan hin þögli meirihluti og mig langar að styðja Sæma í þessu. Ég hef verið að fjarlægjast Kraftinn sökum manna eins og Brútus, E555fan og fleiri til sem færa þetta spjall niður á sorp-planið. Mér finnst svosem leiðinlegt að gera þessa menn ábyrga en það kemur af sjálfu sér þegar þeir eru svo taktlausir að halda bullinu áfram á þræði sem er ætlaður sem pen ábending til þeirra og fleiri.
Svo get ég einnig sagt að Icedev er langt frá því að vera nokkurt vandamál hérna á kraftinum.
Bottom line: Hættið að bulla.
Kv.
Þórir I.
///M wrote:Vá hvernig væri nú að fara banna þessa aula

Sabine Schmitz wrote:"Fear disturbs your concentration."
Þórir wrote:þegar þeir eru svo taktlausir að halda bullinu áfram á þræði sem er ætlaður sem pen ábending til þeirra og fleiri.

Brútus wrote:
E55FFFan wrote:heyrðu, ég er búin að vera að skoða kraftin í ca 3 ár og mer finnst ég bara búin að vera ansi þögull miðað við aðra á þessu tíma, eina sem ég hef virkilega þurft að koma á framfæri eru sölur á 2 bílum sem ég hef átt :evil:

Brútus wrote:finnst að það ætti að vera svona væluþráður hérna. Fyrir þá sem vilja væla.

saemi wrote:Brútus wrote:finnst að það ætti að vera svona væluþráður hérna. Fyrir þá sem vilja væla.
Ég held þú sért ekki að skilja alveg. Það er verið að kvarta undan svona skrifum frá þér, það er ekki verið að væla. Þessi spjallvefur er ekki fyrir þig til að drulla yfir allt og alla.
Þetta er ekki væl, þetta er gagnrýni á þig og þína pósta. Hvernig væri nú að hætta að jarða sjálfan sig í bili.

Sabine Schmitz wrote:"Fear disturbs your concentration."
Users browsing this forum: No registered users and 68 guests