Flotunin var 360 þúsund hjá þeim í Flotmúr. Það var reyndar svolítið þykkt, 25-50 mm (herbergin voru mis "djúp"). Minnir að þetta hafi verið rúmir 3,5 rúmmetrar af efni. Þeir unnu alla forvinnu, slípun og slíkt. Ég var ánægður með þá.
Ég fékk tilboð í hitalagnir hjá Tengi, sem eru með besta kerfið eftir því sem ég komst að og það er ca. 4500 kr. fermeterinn. Þá erum við að tala um mottukerfi sem er raðað á gólfið. Það er dýrara, en þá þarftu ekki eins mikið flot.
Ef þú notar álpexið beint á gólfið, þá þarftu 50 mm flot ofan á það, nema þú nennir að fræsa rákir í gólfin. Ég byrjaði aðeins á því, en gafst upp. Rykið og vibbinn er ólýsanlegur.[/quote]
Var að fræsa fyrir hitalögnum í bað- og eldhúsgólf hjá mér... var ekki sá
vinsælasti í húsinu
Best bara að verja sig vel og tengja ryksuguna við fræsarann/tvíblöðunginn..
