gunnar wrote:
Ansi góður punktur Jói, ég var einmitt með þetta hugafar líka. Ég fór ekki á eina einustu strönd í ferðinni hjá mér, fyrir utan 30 min stopp á ströndinni í St. Tropez. Maður hafði bara nóg að gera að skoða hina og þessa hluti og fá að njóta þess að geta verið frjáls eins og fuglinn.
Mæli samt hins vegar ekki með því að keyra 15 tíma alveg stanslaust. Ég var helvíti örmagna eftir það.
..allt í lagi að kíkja aðeins á sólina - gerði það á Corfu, Dubrovnik, Mónakó og Spáni
En aðalpointið er að Interrail er ekki frí, as in sofa fram eftir og slæpast þess á milli. Þetta var hardcore 6 vikur svona eftir á að hyggja, en sé ekki eftir mínútu og þó svo að við hefðum farið mjög stóran hring og marga staði, og eflaust viljað eyða meiri tíma sumstaðar, þá hefði ég ekki heldur viljað sleppa einum einasta stað....
...talandi um langar ferðir, láttu reyna 14 tíma lest milli Thessaloniki og Istanbul, þar sem þú meigst frekar í pepsi flöskuna heldur en fara á klósettið....

því meira rural og raw - því lengra frá vestrænni menningu - því skemmtilegra!
Annað líka fyrir Interrail fara - tékkið hvar/hvort þið getið nýtt passann í ferjur - það var helv. gaman að taka fara með skemmtiferðaskipi yfir Adríahafið frá Ítalíu til Grikklands frítt....meira að segja fríhöfn í dallinum - sem endaði með heeeeljarinnar fylleríi.....GOOD TIMES!!