gdawg wrote:
Alpina wrote:
1) hvað ertu að sækjast eftir..
2) hvað hefurðu mikinn tíma
3) hvar hvenær hvernig ,, ferðu á milli
4) Þýskaland er stórt land og MIKIL UMFERÐ
5) hvað má þetta kosta
6) hvenær ertu á staðnum
spáðu í þessu og þá færðu eflaust svör sem hægt er viða mið á nokkuð áræðanlegum heimildum
Mjög mikið til í því sem Alpina segir þarna, sérstaklega með tímann og umferðina, alls ekki reyna að gera of mikið á stuttum tíma, þá bara endarðu á því að keyra allan daginn og sjá ekki mikið annað en hraðbrautir.
Maður er kannski að reyna að gera of mikið á of litlum tíma.
1) Ég fer í byrjun Ágúst, fer út 31 Júlí og kem heim 14 Ágúst.
2) Þannig að ég hef nokk þessar tvær vikur til að skoða mig um.
3) Lendi í Frankfurt og fer þá til Reissing, sem er ekki langt frá landamærum Þýskalands og Austurríkis. CA 1 klst frá Munich. Þar býr fólkið sem ég gisti hjá.
Planið er að taka bílaleigubíl í þessar tvær vikur sem ég verð þarna og þar af leiðandi er það ekki aðalvandamálið að koma sér á milli staða.
4) Mjög stórt en þetta er geranlegt miðað við km tölur og tímann, hvernig er umferðin samt? Maður getur haldið ferðahraða á Autobahninum býst ég við?
5) Það væri náttúrulega best ef þetta gæti kostað sem minnst, borða ódýrt og gista ódýrt. Ekkert hámark er í raun komið á ferðina en ég verð að taka tillit til þess að ég er í skóla og þarf þess vegna að hugsa um budduna.
6) Í byrjun Ágúst.
_________________
Geysir Golf - Kíktu í Golf'98 W210 E240
'90 GSX750F - The Ugly Bastard