Jæja kraftsmenn.
Nú er stefnan sett á Þýskalandsferð í byrjun Ágúst og maður er aðeins byrjaður að setja saman plan fyrir ferðina en mig langaði að forvitnast hvort spjallmeðlimir gætu mælt með eitthverjum skemmtilegum stöðum til að skoða eða hlutum til að gera þarna?
Er kominn með nokkur plön fyrir ferðina.
1 Dagur: Leggja af stað snemma að morgni frá Reissing (Bavaria) og fara til Nurburgring, ca 5 tíma akstur þangað ef ferðin gengur vel. Deginum eytt þar.
(Tips um ódýra gististaði í grennd væru vel þegnir, hvort sem er tjald eða hús.)
2 Dagur: Lagt af stað snemma að morgni frá Hringnum og farið til Wolfsburg.
Ca 4-5 tíma akstur. VW verksmiðjan skoðuð og VAG söfnin.
Lagt af stað og farið til Dresden, ca 3-4 tíma akstur þangað. Porsche safnið skoðað og vonandi fleiri staðir
Annað hvort gist þar eða rennt til Reissing daginn eftir.
Heildarlengd smk AutoRoute: 1750 Km.
Plan 2, 2-3 daga ferð einnig.
1 Dagur: Lagt af stað snemma að morgni frá Reissing og farið til Sant'Agata Bolognese (og hvað er þar? Klapp frá mér til þeirra sem vita svarið) Þetta er langur akstur um 670 km, Autoroute segir um 6 tíma akstur miðað við ekkert stopp.
Skoðað sig um.
Farið til Maranello sem er nánast í næsta hverfi.
Farið að sofa, fyllerí og íslensk dólgslæti um kvöldið.
2 Dagur. Vaknað í þynnku og rennt til Modena sem er einnig nánast í næsta hverfi.
Farið til Stuttgart og Benz Safnið skoðað.
Gist í Stuttgart, á leiðinni eða jafnvel rennt alla leið til Reissing aftur.
Heildarlengd smk AutoRoute: 1734 Km.
Þetta eru svona helstu plönin, endilega komið með uppástungur um skemmtilega staði sem vert er að skoða.



