Máni wrote:DoDoJuice,
er þetta eitthvað eins og meguiars?
eða er það ekki annars best

Meguiars eru svo sem allt í lagi bónvörur en það eru til fleiri þekkt vörumerki og bónvörur sem eru betri. Gott dæmi um þekkt merki er t.d. Zymöl og Swissvax sem eru þekkt sem mjög góð bón en mjög dýr.
DodoJuice bónin eru Carnauba bón sem voru sett á markaðinn til þess að sýna að það sé hægt að framleiða og selja þessi svokölluðu hágæða glansbón sem innihalda Carnauba og selja á allt að 50%-70% lægra verði en gengur og gerist.
Dæmi er að í fyrra keypti ég Zymöl Concourse bón frá bandaríkjunum ásamt Zymöl HD cleanse Pre-wax og það kostaði mig um 15000 kr. DodoJuice Rainforest Rub eða DodoJuice Hard Candy ásamt DodoJuice Lime Prime kostar t.d. ekki nema 5300kr. og ætti það að endast í um 15-25 umferðir.