Þetta er hvorki skipulaggt af mér né skrifað!
Þeir sem telja að ríkisstjórnin sé ekki að standa sig í stykkinu notum þá eina daginn sem við getum mótmælt almennilega og vona ég svo innilega að sem flestir sjái sér fært að mæta 1 maí niður á Austurvöll og mótmæla all hressilega, því það vill svo til að 1 maí er baráttu dagur verkalíðsins en ekki fjölskyldu dagur verkalíðsins sem hann reyndar virðist vera orðinn hér á landi.
Koma svo kæru samlandar sínum nú að við erum alvöru víkingar en ekki einhverjir aumingjar sem láta allt yfir sig ganga. Vill ég minna á að landið okkar er stofnað af mönnum sem þoldu ekki sýna stjórn og þar sem menn voru bara drepnir fyrir að mótmæla á þeim tíma þá yfirgáfu þeir frekar sitt land heldur en að vera undir hælnum á yfirvaldinu. Myndu þessir sömu menn vera stoltir af því hvernig íslenska þjóðin er orðinn, haldið þið að þetta hafi verið það sem Jóni Sigurðsinni hafi dreymt um að sjá okkur verða þegar hann barðist við að koma okkur undan kúun dana? Haldið þið að þetta hafi verið það sem Ingólfur Arnarsson hafi haft í huga þegar hann varpaði öndveigissúlunum fyrir borð til að finna sitt land sem hann kallaði síðan Reykjavík að hún yrði bara upp full að aumingjum sem aldrei þorðu að gera eða segja neitt annað enn ,,JÁ HERRA`` ég er sáttur við allt sem þú gerir og mér er sama hvaða hlut ég hef útúr þessu bara svo lengi sem þú þurfir ekki að lepja dauðan úr skel. Hvenar hættum við að vera okkar eiginn herrar og ákváðum að fara aftur í að vera þrælar.
Ef þið getið staðið stolt fyrir framan spegil og sagt við ykkur mér finnst allt frábært hér og ég er svo stoltur af því að vera Íslendingur og ég er svo stoltur af ráðherrum mínum og ég er svo sáttur við allt sem þeir gera fyrir mig þá endilega slepptu því að mætta því þá hefuru ekkert að gera þarna þar sem þetta er baráttu dagur verkalíðsins.
Þó svo ég hafi kosið þessa menn á þing þá er ekki þar með sagt að ég þurfi að vera sáttur við það sem þeir segja og gera eða í sumum tilvikum gera ekki, á ég þá bara að þegja og þykjast sætta mig við það og byrgja það bara allt inni þangað til ég spring og hvað skéður þá, fer það þá ekki bara að bitna á fólkinu sem mér þykkir vænt um en ekki þeim sem þurfa að heyra þetta. Bílstjórar hafa verið að láta heyra í sér og láta vita að þeir séu ekki sáttir við hvernig ríkistjórnin heldur á málum hér í landi og hvaða viðbrögð fá þeir frá henni? jú, það liggur við að við séum settir á sama stall og Al-kaita, erum við að hlaupa inní hóp með sprengju belti bundið við okkur og drepa saklaust fólk eða valda skemmdun eins og sprengja brýr, er það hryðjuverk að stöðva umferð hér á landi?.
Að lokum segi ég hættið að tala um hvað allt er slæmt hér og standið upp og látið í ykkur heyra og ef þið eruð ekki sammála hvernig við förum að þessu en langar samt að sjá einhverjar breytingar látið þá sjá ykkur 1 maí og látið í ykkur heyra. Ekki búast við því að það sé gert eithvað fyrir ykkur ef þið hángið bara heima og talið um það hvað allt er slæmt.
Bannað að gleyma ,
ALLIR AÐ MÆTA !!!






