Aðgerðaleysi held ég að sé nú varla hægt að saka ríkisstjórn um. Hinsvegar er lítið hægt að gefa upp um hvað er verið að gera og ekki er hægt að taka neinar skyndiákvarðanir við stöðu eins og nú er.
Svo má heldur ekki gleyma því að svona er staðan ALLSSTAÐAR - ekki bara á Íslandi semsagt og sitja margir mun dýpra í skítnum en Íslendingar - var ekki í fréttum í dag að fasteignaverð í USA hefði lækkað um 15% í mars? Glitnir spáði fyrir stuttu síðan 0.3% á Íslandi þó engin taki auðvitað mark á því.
Ég tek undir með Giz enda svipað ástatt hjá mér - held fyrst og fremst að fólk geti sjálfu sér um kennt og þegar maður er búin að vera lengi úti þá sér maður hvað þetta er áberandi.
Ég skora á þá sem ekki hafa keypt sér dýrari bíl eða auka bíl á síðustu 4 árum, stærri íbúð, farið í dýrar utanlandsferðir, nýja eldhúsinnréttingu, sófasett eða keypt sér flatskjá að mæta niður í bæ og mótmæla því að hafa ekki fengið sinn skerf í góðærinu! það væri allavega meira vit í því en þessu - en miðað við þessi skilyrði þá myndu líklega fáir mæta ekki satt?
Það er nú lágmark að hafa eitthvað til að mótmæla.
Ísland er fullt af fólki sem lifir LANGT umfram efni og því svíður þegar niðursveiflan kemur þar sem það er ekkert svigrúm til að mæta henni. Það er alveg glórulaust að venjulegt launafólk keyri um á forstjórabílum eins og nánast annar hver maður gerir orðið í dag - líklegast ekki bara launafólk heldur líka námsmenn.
Það má vel vera að stjórnvöld hafi getað staðið betur að málum en það er 100% pottþétt að þorri fólks hefði átt að sjá fótum sínum forráð og vissara er að hafa sín mál á hreinu áður en maður fer að gagnrýna aðra fyrir eigin galla (á við um mig líka auðvitað

).
Kannski hefðu bankarnir átt að hafa nokkrar lánalöggur á sínum snærum
