saemi wrote:
IvanAnders wrote:
Þetta kemur nú bara til hjá mér þar sem ég er ekki hundamanneskja, og fátt sem pirrar mig meira en að vera í návist við illa upp alinn hund!
Og ég vinn við að þjónusta bíla, oft marga á dag, og þvílíkt sem bílar geta verið viðbjóðslegir eftir hunda!!!
Og það færi ALDREI, ekki undir nokkrum kringumstæðum hundur inní bílinn minn!
Og já, ég er skotveiðimaður og það er alveg haugur af dýrum sem mig langar að skjóta

Finnst það ekki þroskað fyrir skotveiðimann að segjast munu skjóta hund ef honum yrði það á að gera svona lagað.
Ég er líka skotveiðimaður, en held mig við að skjóta dýr sem ÉG HYGGST LEGGJA MÉR TIL MUNNS eða eru lífríkinu til ama.
Að skjóta gæludýr / heimilisdýr eða dýr sem maður hefur engan tilgang að skjóta nema að deyða viðkomandi dýr er mjög ljótur hlutur frá mínum bæjardyrum séð. Ég get ekki annað en fengið illan bifur á slíku fólki, það ber ekki vott um góðan karakter að mínu mati.
Í öllum bænum Sæmundur!
Ég get alveg sagt þér það að ég hef étið hvert einasta dýr sem ég hef skotið!!!
Ég tók svona til orða til að undirstrika hversu reiður ég yrði ef að hundur myndi fara svona með bílinn minn!
Að sjálfsögðu myndi ég ekki skjóta helvítis hundinn! Heldur fara fram á bætur frá eiganda viðkomandi hunds!
Þú ættir að vera búinn að læra, eftir öll þessi ár á þessu spjalli að stundum þarf að lesa á milli línana!
Svona eru bara mannleg samskipti, maður meinar ekki hvert orð, og í þessu tilfelli fannst mér nokkuð augljóst að ég væri ekki að meina þetta bókstaflega
Ég hótaði t.d. að setja land rover límmiða á E30 hans Jónka í vikunni, og hann sagðist myndi drepa mig ef ég gerði það, ég var nú ekkert að tilkynna þessa morðhótun til lögreglunnar neitt, ef þú skilur hvað ég er að fara
En eins og svo oft áður komst boðskapurinn ekki rétt á leiðarenda yfir veraldarvefinn!
Og já, ég hef gaman af skotveiðum, en hef óbeit á hundum, það þýðir ekki að ég sé haldinn sjúkri þörf til að drepa gæludýr annara!
Skulum ekki byrja enn eitt lúkasarmálið!
_________________
Alpina wrote:
er þetta utandeildin eða hvað er að gerast ,,,